12.10.2022
Piff er alþjóðleg kvikmyndahátíð á Vestfjörðum. Sýningar verða í Súðavík annað árið í röð og fáum við úrval stuttmynda auk ævintýramyndar sem sýnd verður á sunnudag fyrir yngri kynslóðina. Á þeirri sýningu verður boðið upp á popp og kók og eitthvað nammi í bland. Á laugardagskvöldinu verða kvenleikstjórar í forgrunni og sýndar verða nokkrar stuttmyndir eftir þær. Þetta eru metnaðarfullar stuttmyndir sem sýndar verða og því eftir miklu að slægjast fyrir kvikmyndaáhugafólk. Verið hjartanlega velkomin.
09.09.2022
Nú fer að styttast í veturinn og breyting verður á opnunartíma Kaupfélagsins í Súðavík. Í í haust og vetur verður opið á mánudögum til föstudags frá 10:00-17:00. Á laugardögum frá 15:00 - 17:00 og lokað verður á sunnudögum. Því ber að fagna að lengri opnunartími verður á virkum dögum og kemur það til með að koma sér vel fyrir marga.
09.09.2022
Fimmtudaginn 8. september 2022 var Eggert Einer Nielson veitt viðurkenning fyrir störf hans í þágu tónlistar og menningar í Súðavík s.l. ár. Bragi Þ. Thoroddsen sveitastjóri veitti Eggert viðurknningarskjalið að morgni þess 8.n en ástæða þótti til að endurtaka athöfnina á tónleikum um kvöldið. Thorsteinn Haukur afhenti vini sínum og félaga til margra ára viðurkenninguna við dynjandi lófatak viðstaddra. Tónleikarnir voru vel sóttir og kvödd Eggert og Michelle alla viðstadda og héldu áleiðis heim til Bandaríkjanna
07.09.2022
Félagsleg liðveisla Súðavík