5. fundur sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps 2022-2026

5. fundur sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps kjörtímabilið 2022-2026 verður haldinn í Álftaveri - Grundarstræti 1, föstudaginn 11. nóvember og hefst hann kl. 9:00.

Dagskrá fundar er eftirfarandi:

  1. Skýrsla sveitarstjóra.
  2. Erindi frá Hafliða Halldórssyni vegna útgáfu starfsleyfis til niðurrifs Eiðs ÍS 126 á Garðstöðum í Ísafjarðardjúpi dags. 3.11.2022.
  3. Málefni heilsugæslu í Súðavík.
  4. Lántaka vegna framkvæmda við uppbyggingu hafnar- og iðnaðarsvæðis við Langeyri.
  5. Velferðaþjónusta í Súðavíkurhreppi – samstarf við Ísafjarðarbæ.
  6. Útboð vetrarþjónustu – til kynningar.
  7. Fjárhagsáætlun Súðavíkurhrepps 2023.

Bragi Þór Thoroddsen - sveitarstjóri Súðavíkurhrepps.