Skýrsla sveitarstjóra fyrir 42. fund sveitarstjórnar 13. mars 2026

Fyrstu dagar milli 41. og 42. fundar fóru í úrvinnslu þeirra erinda sem lágu fyrir fundinn. Sveitarstjóri gat ekki setið 4. fund starfshóps um almyrkva mánudaginn 16. febrúar sem skaraðist við annað í dagskrá. En líkt og úrlausnarefni fundarins vék að þarf að skilgreina safnstaði vegna atburðarins þann 12. ágúst 2026. Þá þarf í raun að hafa eitthvað viðbragð og plan á staðnum líkt og gildir um alla þá staði þar sem búast má við auknum fjöld fólks sem kemur til þess að fylgjast með og upplifa.

Gott að rifja upp heimasíðu Sævars Helga Bragasonar um viðburðinn – solmyrkvi2026.is þar sem finna má bæði fróðleik og hagnýtar upplýsingar. Vestfjarðastofa heldur utan um samhæfingu sveitarfélaga á Vestfjörðum til þess að undirbúa tímamarkið.

Þá var fundur í fjárhagsnefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga hvar sveitarstjóri situr sem áheyrnarfulltrúi og þann sama dag vnnufundur með hagaðilum vegna uppbyggingar kalkþörungaverksmiðju við Langeyri. Þá styttist á þeim tímapunkti í komu Lakogép sem gert var ráð fyrir um 19. mars. Næstu úrlausnarefni eru vatn fyrir svæðið og gyrðingar fyrir lokun hafnar og öryggissvæði. Fyrir liggur að stefnt er að skóflustungu uppbyggingarinnar þann 15. apríl nk.

Annar stjórnarfundur í stjórn Vestfjarðastofu og Fjórðungssambands Vestfirðinga fimmtudaginn 26. febrúar sem sveitarstjóri sat sem áheyrnarfulltrúi.

Haldinn var stjórnarfundur í Fasteignafélaginu Langeyri ehf. föstudaginn 6. Febrúar, efn fáir fundir hafa verið halndir í félaginu. Til langs tíma hefur ekki verið hreyft við leiguverði fyrir iðnaðarhúsnæði á Langeyri. Til þess að færa það í átt að eðlilegu afgjaldi var ákveðið af stjórn að hækka leigu um 30%, sem gerir leigu allt að einu í ódýrari kantinum. Leiguverð þarf að endurspegla raunkostnað af rekstri hússins og þörf fyrir viðhald.

Boðaður stjórnarfundur Iceland Sea Angling mánudaginn 2. mars 2026 og fundarstaður Reykjavík. Sveitarstjóri átti pantað flug þann dag til að mæta á fundinn en veður setti strik í reikninginn. Stjórnarfundurinn fór fram í Reykjavík en sveitarstjóri sat fundinn í fjar. Stjórnar-formaður sagði sig frá stjórnarsetu á fundinum og var sveitarstjóri tilnefndur til formennsku og það samþykkt af fundinum. Finnur Jónsson verður áfram framkvæmdastjóri félagsins og verður áframhaldandi starfsemi með sama hætti og verið hefur. Rétt er að árétta, að gefnu tilefni, að sveitarstjóri situr fundi Iceland Sea Angling fyrir hönd Súðavíkurhrepps. Ávirðingar um persónulega hagsmuni af félaginu verður að setja í samhengi við ástæðu veru sveitarstjóra í stjórn félagsins. Súðavíkurhreppur er um 20% eigandi hlutafjár í félaginu frá stofnun þess og ein af starfsskyldum sveitarstjóra er framkvæmdastjórn félaga s.s. Grundarstrætis ehf. og Fasteignafélagsins Langeyrar ehf. auk stjórnarsetu í Melrakkasetri og Iceland Sea Angling. Persónulegir hagsmunir af framangreindu eru langsóttir.

Af framkvæmdum og endurbótum fasteigna ofl.

Samkomuhús Súðavíkur:Framkvæmdir við Samkomuhúsið hófust í febrúar, en Vestfirskir verktakar annast það sem verið er að lagfæra þessa dagana. Framkvæmdir hófust í anddyri og gangi inn að baðherbergjum þar sem gólfið var orðið lélegt. Þá var ákveðið að fjarlægja stromp til þess að auka það rými sem unnt yrði að nýta undir salernisaðstöðu. Mygla og fúi var áberandi við strompinn og út við steyptan vegg sem var tréklæddur og því ekki um annað að ræða en að fjarlægja alla klæðningu í anddyri. Búið er að ganga frá gólfinu og loka því sem var rifið. Sjá frétt um það á heimasíðu Súðavíkurhrepps.

Málefni sem varða Vigur: Með vísan til erindis sem sent var sveitarstjóra og sveitarstjórn þann 30. janúar 2026 tók sveitarstjóri að sér að svara erindinu. Svar var sent Árna Þórólfi Árnasyni lögmanni þann 25. febrúar þar sem gerð var grein fyrir aðkomu Súðavíkurhrepps að hafnarmálum í Vigur og afstöðu sveitarfélagsins til krafna um skaðabætur, en efni bréfsins var kynnt sveitarstjórn þann 24. febrúar sl. Engin viðbrögð höfðu komið við svarinu í um 10 daga frá lögmanni, hvorki móttaka eða afstaða. Sveitarstjóri fylgdi eftir erindinu með símtali þann 10. mars. Lögmaðurinn tók vel í bréfið sem svar og veltu lögmaður og sveitarstjóri því upp hvort ekki væri tilefni til sátta og að leiða málið í jörð. Það væri farsælla fyrir báða aðila og raunar betri auglýsing út á við en ágreiningur sem er að baki. Sveitarstjóri lýsti sig en tilbúinn til þess að hitta umbj. lögmanns ef þau telja að það sé til einhvers.   

Ný slökkvibifreið Slökkviliðs Súðavíkurhrepps: Þann 1. mars 2026 kom nýi slökkvibíllinn okkar til Súðavíkur. Þann 2. mars mættu fulltrúar frá Wiss í Póllandi til Ísafjarðar þar sem fram fór kennsla á bílinn og lýsing á búnaði. Bæði fulltrúar frá Slökkviliði Súðavíkurhepps og Slökkviliði Ísafjarðarbæjar fengu kennslu á bílinn og voru viðstaddir hrifnir af búnaði og gerð bílsins. Kaupverð hefur hækkað vegna breytinga á gengi gjaldmiðla og hefur þegar verið greitt, kr. 47,7 mkr. Bolungarvíkurkaupstaður kaupir af okkur eldri bílinn og er kaupverð kr. 5 mkr. Búið er að skila lokaskýrslu til Fiskeldissjóðs vegna styrks í kaup á bílnum og hefur verið afgreitt. Niðurstaðan er sú að Slökkvilið Súðavíkurhrepps verður með nýjasta og líklega best útbúna bílinn á Vestfjörðum. Sjá frétt á heimasíðu Súðavíkurhrepps.

Mánudagurinn 9. mars hófst með fundarhöldum. Stöðufundur um Heitupottaverkefnið með Bláma. Sveitarstjóri hefur verið í samskiptum við Fiskeldissjóð út af þeim verkefnum sem hefur fengist úthlutun í með skil á lokaskýrslum vegna þriggja verkefna. Sjóðurinn bauð að skila inn áfanga/stöðuskýrslu þannig að unnt sé að framlengja frest til þess að ljúka framkvæmdum. Ákveðið að taka saman greinargerð um stöðuna og áætla framvindu og lok verksins. 

Kick-off fundur með Advania um innleiðingu Skjaldar – netöryggisparturinn fyrir Súðavíkurhrepp. Innleiðingarferli stendur yfir þessa dagana og næstu tvær vikur. Þegar þetta er ritað hefur Skjöldur verið innleitt sem netöryggisviðbót fyrir tölvukerfi Súðavíkrhrepps.

Fundur skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefndar miðvikudaginn 12. mars. Ákveðið að bjóða út lagningu vatnsleiðslu fyrir Langeyri, og það rætt frekar á fundin sveitarstjórnar þann 13. mars.

Veðurspá óhagstæð fyrir fimmtudaginn 12.3 og Súðavíkurhlíð lokað um kl. 11:30 og mokstri hætt í Ísafjarðardjúpi. Þegar þetta er ritað hefur einn aðili leitað ásjár hjá okkur í Súðavík varðandi gistingu. Veðurspár gera ráð fyrir að veðrið gangi niður þegar fer að líða á föstudagsmorgun. Hér var raunar rétt verið að fara yfir stöðuna eins og hún var þá, en frekari lokanir og samgöngutruflanir hafa komið upp á Súðavíkurhlíð eins og við var að búast.

Byggðakvóti: Komin staðfesting frá Innviðaráðuneytinu um að fallist væri á sérreglur Súðavíkurhrepps um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025/2026. Verður tilkynnt og auglýst eftir þeim reglum sem um gilda.

Gengið var frá starfslokum skólastjóra Súðavíkurskóla, en Anna Lind Ragnarsdóttir mun láta af störfum þann 30. júní 2026. Auglýsing um starfið hefur verið send út til fjölmiðla.

Skýrsla sveitarstjóra eins og hún var lögð fyrir sveitarstjórn á 42. fundi sveitarstjórnar þann 13. mars 2026, með örlitlum lagfæringum.

Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri Súðavíkurhrepps