Framkvæmdir í Samkomuhúsinu

  • Samkomuhúsið í Súðavík. Undandafarna mánuði hefur verið ráðist í endurbætur á Samkomuhúsinu í Súðavík. Búið er að breyta og stækka við eldhús, skipta um gólfefni í sal auk fleiri endurbóta. Sveitarstjórn setti í fjárhagsáætlun fjárhæð til endurbóta á húsinu enda þörf bæði viðhalds og breytinga. Einkum er aðkallandi að lagfæra handrið utan á húsinu á framanverðu auk viðgerða og málunar glugga. Þá er jafnframt þörf á því að breyta salernum og gera við gólf í anddyri. Vestfirskir verktakar annast verkið fyrir Súðavíkurhrepp, en byrjað var að skoða gólf í anddyri og skipta út salernisaðstöðu. Við það verk kom í ljós bæði talsverður fúi í tréverki auk myglu við kyndiklefa/miðstöðvarhús. Varð því óumflkýjanlegt að rífa frá veggjum og opna gólf til þess að fjarlægja myglu og skipta út því sem er fúið. Teknar voru myndir í anddyri og því unnt að endurbyggja með sama hætti sjoppuna og þann hluta sem búið er að rífa frá. Verður því fyrst gengið frá gólfi í anddyri og að loka veggjum við útveggi. Líkt og fram kom á íbúafundi í vetur stendur til að skoða hvað unnt er að gera varðandi Samkomuhúsið og hafa um það samráð og upplýsingagjöf varðandi þau verk sem unnin verða og endurbætur á húsinu. Staðan verður rædd á næsta fundi sveitarstjórnar og hvernig staðið verði að verkinu í framhaldinu.
  • ljósmyndir og frétt Bragi Þór Thorodssen og Thorsteinn Haukur