Nýr slökkvibíll Slökkviliðs Súðavíkur
03.03.2026
- Slökkvibíll fyrir Súðavíkurhrepp og Slökkvilið Súðavíkurhrepps. Í lok árs 2024 og byrjun árs 2025 kom upp sú hugmynd að uppfæra slökkvibifreið Súðavíkurhrepps vegna uppbyggingar verksmiðju við Langeyri. Ljóst var að efla þyrfti slökkviliðið og uppfæra tækjakost talsvert með breytingum á sveitarfélaginu. Upphfalega var lagt upp með að kaupa nýjan Ford 550 bíl sem yrði með uppfærðum búnaði og öflugri slökkvigetu. Í byrjun árs 2025 opnaði fyrir umsóknir í Fiskeldissjóð. Sveitarstjóri og slökkvistjóri ræddu það að sækja um fyrir nýrri slökkvibifreið í sjóðinn og varð það úr að send var inn umsókn og sótt um allt að 40 mkr. til kaupa á bíl. Á sama tíma var óskað eftir tilboði í nýjan Ford 550 bíl hjá Ólafi Gíslasyni (Eldvarnarþjónustunni). Verð á þeim bíl var yfir 40 mkr. m/vsk. Málið var rætt við Sigurð Arnar Jónsson, slökkvistjóra hjá Slökkviliðinu á Ísafirði, enda er samstarf með slökkviliðunum í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi. Eftir vangaveltur duttum við niður á bíl, nýjan MAN 4x4 tveggja öxla bíl sem WISS í Póllandi er að standsetja. Áætlað kaupverð var nálægt verði á nýjum Ford 550 en getumunur mikill. Varð því úr að farið var að skoða af alvöru að taka stærri bílinn. Fallist var á umsókn Súðavíkurhrepps fyrir kaupum á nýjum slökkvibíl, en styrkur fékkst að upphæð 25,5 mkr. upp í bílinn. Var því gengið frá pöntun á MAN bílnum frá WISS. Bíllin var afhentur í síðustu viku og búið að setja undir hann negld dekk og kaupa í han rafmagns klippur og glennu fyrir bílflök. Skammt er síðan alvarlegt slys varð á Súðavíkurhlíð og því ljóst að þörf var á slíkum búnaði. Bíllinn er gríðarlega vel útbúinn, bæði öflugri dælu og vatnsbyssu sem hægt er að fjarstýra með getu upp að 55 metrum. Ákveðið var að selja eldri bifreiðina til áframhaldandi starfa fyrir slökkvilið og verður gengið frá því á næstu dögum. Bíllinn verður til sýnis á næstu dögum og verður auglýst síðar.
- ljósmyndir og frétt Bragi Þór Thoroddsen og Thorsteinn Haukur
- video