Deiliskipulagsbreyting - Langeyri, hafnar og iðnaðarsvæði inn af Langeyri

Auglýsing um skipulagsmál í Súðavíkurhreppi

Langeyri, hafnar- og iðnaðarsvæði inn af Langeyri

Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps samþykkti þann 16. september 2022 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi hafnar- og iðnaðarsvæðis inn af Langeyri í Álftafirði skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

Ástæða breytingarinnar er að auka rými á athafnasvæði kalkþörungaverksmiðju svo hægt verði að koma fyrir hráefnisþróm en þeim er ætlað að koma í veg fyrir að set berist til sjávar.

Með breytingunni stækkar athafnasvæði á lóð nr. 1 og fyrirhuguð landfylling stækkar miðað við gildandi deiliskipulag.

Tillagan  liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, Súðavík og hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 28. september til 9. nóvember 2022 á venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og  berast skipulagsfulltrúa Súðavíkurhrepps  í síðasta lagi 10. nóvember 2022 á skrifstofu Súðavíkurhrepps,  Grundarstræti 3, 420 Súðavík eða á netfangið sudavik@sudavik.is

Jóhann Birkir Helgason

skipulags- og byggingarfulltrúi Súðavíkurhrepps

 

Uppdrátt fyrir deiliskipulagslýsingu er að finna hér. Skipulagslýsingu er að finna hér.