Framkvæmdaleyfi vegna lagningu strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar

Framkvæmdaleyfi vegna lagningu strengja milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar

 

 

Orkubú Vestfjarða ohf. sækir með umsókn sinni dags. 28. apríl 2026 um að framkvæmdaleyfi verði gefið út vegna lagningu tveggja jarðstrengja ásamt ljósleiðara frá tengivirki á Langeyri í Súðavík ofan byggðar í Súðavík og út eftir Álftafirði að sveitarfélagsmörkum, um 7 km leið, á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja og samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 13/2010

Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps staðfesti niðurstöðuna á fundi sínum 8. maí sl.

 

Framkvæmdaleyfi er veitt á grundvelli þeirra gagna og fylgigagna í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdaleyfisgjald að fjárhæð kr. 244.172,- hefur verið greitt.

 

Niðurstaða Skipulagsstofnunar frá 4. mars 2026 er sú að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því óháð mati á umhverfisáhrifum.

 

Fylgiskjöl og greinargerðir má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins www.sudavik.is

 

Vakin er athygli á því að niðurstaða sveitarstjórnar er kæranleg til til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar.

Athugasemdir skulu berast á skrifstofu Súðavíkurhrepps eða með tölvupósti á jbh@vekis.is.

 

 

 

 

 

 

 

Súðavík, 22. maí 2026

 

 

__________________________

Jóhann Birkir Helgason

Skipulags- og byggingarfulltrúi