Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps hefur samþykkt á 33. fundi sveitarstjórnar þann 23. maí 2025 eftirfarandi breytingu á hafnar- og iðnaðarsvæði innan Langeyrar. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Súðavíkurhrepps, Grundarstræti 3, Súðavík og hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Hafnarstræti 1, Ísafirði, frá 2. júní til 14. júlí 2025 á venjulegum skrifstofutíma og á heimasíðu Súðavíkurhrepps www.sudavik.is. Frestur er til og með 14. júlí 2025 og skulu athugasemdir vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa Súðavíkurhrepps á netfangið sudavik@sudavik.is eða með pósti á skrifstofu Súðavíkurhrepps að Grundarstræti 3 - 420 Súðavík. Sjá meðfylgjandi auglýsingu frá skipulags- og byggingafulltrúa sveitarfélagsins. Slóð á uppdráttinn er að finna hér.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.