1. fundur sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps kjörtímabilið 2026-2030

04.06.2026 09:00

SÚÐAVÍKURHREPPUR

- FUNDARGERÐ -

1. FUNDUR SVEITARSTJÓRNAR KJÖRTÍMABILIÐ 2026-2030

 

Árið 2026, fimmtudaginn 4. júní kl.09:00 var haldinn fundur í sveitarstjórn Súðavíkurhrepps í fundarsal Álftavers að Grundarstræti 1.

Mætt voru Kjartan Geir Karlsson, Birta Lind Garðarsdóttir, Jónína M Guðmundsdóttir, Kristján Rúnar Kristjánsson og Ingibjörg Ásdís Björnsdóttir. Jónína M Guðmundsdóttir ritaði fundargerð. 

Engin athugasemd gerð við boðun fundarins.

Settur fundarstjóri er Kristján Rúnar Kristjánsson setti fundinn og var gengið til dagskrár.

 

 

 

 

Dagskrá:

 

1.      Skipan sveitarstjórnar-oddvitakjör ofl.

2.      Skipað í nefndir Súðavíkurhrepps fyrir kjörtímabilið 2026-2030

Lagt fram

 

 

 

 

1.       Skipan sveitarstjórnar – oddvitakjör og fl.

Borin fram tillaga um að Birta Lind Garðarsdóttir yrði fyrsti oddviti sveitarstjórnar til eins árs. Samþykkt samhljóða.

Fram kom tillaga um að Kjartan Geir Karlsson yrði varaoddviti og var það samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn leggur til að fundartími reglulegra funda sveitarstjórnar verði kl 09:00 annan hvern föstudagdag og aukafundir þegar þörf krefur.

 

2.       Skipan í nefndir Súðavíkurhrepps fyrir kjörtímabilið 2026-2030

Drög lögð að nefndum – verður samþykkt á næsta fundi sveitastjórnar

 

3.       Önnur mál

-          Farið yfir tilboð varðandi vatnsveitu, verður óskað eftir ítarlegri gögnum.

-          Oddvita falið að halda áfram viðræðum við Intellecta varðandi auglýsingu á sveitastjóra.

-          Húsnæðisáætlun í vinnslu.

-          Hafa samband við Artic Fish varðandi geymslupláss á Njarðarbraut.

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 11:30.

 

Sign:

 

Kjartan Geir Karlsson                                                                                   Ingibjörg Ásdís Björnsdóttir

 

 

 

Jónína M Guðmundsdóttir                                                                  Kristján Rúnar Kristjánsson

   

      Birta Lind Garðarsdóttir