Lausar lóðir

Deiliskipulagsuppdrátt Súðavíkur má finna hér

Lausar lóðir, lóðir tilbúnar í skipulagi, eru eftirfarandi:

Einbýlishúsalóð nr. 1 við Víkurgötu. Gatan samanstendur af húsum sem flutt voru úr ytir byggð Súðavíkur - gamla þorpinu. Æskileg gerð húsa við götuna er samskonar byggingarstíll á tveimur hæðum. 

Einbýlishúsalóð nr. 10 við Vallargötu - einbýli á einni hæð. 

Einbýlishúsalóð nr. 6 í Eyrardal - möguleiki á húsnæði fyrir verslun og þjónustu eða einbýli á einni hæð. 

Einnig gætu verið lausar lóðir fyrir einbýli, parhús eða lítið fjölbýli á einni eða tveimur hæðum í Holtagötu samkvæmt samkomulagi við skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefnd Súðavíkurhrepps.