Reglur Súðavíkurhrepps um félagslega heimaþjónustu

Samþykkt 9. október 2008

 

Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.40/1991

1.gr.
Markmið

Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að gera fólki kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður, þrátt fyrir erfiðleika svo sem veikindi, fötlun, álag eða erfiðar fjölskylduaðstæður.

2.gr.
Réttur til félagslegrar heimaþjónustu

Rétt til heimaþjónustu samkvæmt reglum þessum hafa þeir sem búa í heimahúsi og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og/eða persónulega umhirðu vegna skertar getu vegna veikinda, fötlunar, álags eða erfiðra fjölskylduaðstæðna. Í þeim tilvikum sem umsækjandi deilir heimili með fullorðnum einstaklingi (þ.e. 18 ára og eldri) sem ekki glímir við skerta getu vegna ofangreindra atriða, er að öllu jöfnu ekki veitt heimaþjónusta.

3.gr.
Umsóknir og mat á þjónustu

Sótt er um félagslega heimaþjónustu hjá félagsmálastjóra á þar til gerðum eyðublöðum. Félagsmálastjóri metur þjónustuþörf í samráði við væntanlegan þjónustuþega. Heimilt er að óska eftir læknisvottorði eða greinagerð frá öðrum sérfræðingum um skerta getu þjónustuþega. Þegar umsókn hefur verið samþykkt gerir félagsmálastjóri þjónustusamning við þjónustuþega þar sem fram kemur hvað felst í þjónustunni og hversu oft hún er veitt. Ef umsókn um félagslega heimaþjónustu er synjað skal það gert með skriflegum rökstuðningi. Umsækjandi getur áfrýjað umsókn til félagsmálanefndar og skal það gert skriflega innan fjögurra vikna frá því að umsækjanda var tilkynnt um synjun.

4.gr.
Gjaldtaka

Félagsleg heimaþjónusta er ellilífeyrisþegum og örorkuþegum að kostnaðarlausu upp að 8 klukkustundum á mánuði. Fyrir viðbótarstundir er greitt samkvæmt gjaldskrá. Aðrir þeir sem uppfylla skilyrði 2. greinar reglna þessa greiða samkvæmt gjaldskrá sem sveitarstjórn setur.

5.gr.
Hlutverk / verkefni

Hlutverk félagslegrar heimaþjónustu er að veita eftir þörfum:

1. Aðstoð við almennt heimilishald: s.s. almenn þrif, þvottar, aðstoð við matseld og innkaup.

2. Aðstoð við persónulega umhirðu sem er ekki í verkahring heimahjúkrunar: s.s. aðstoð við að klæðast og viðveru / eftirlit þegar þjónustuþegi fer í bað.

3. Félagslegan stuðning: s.s. hvatningu og samveru til að rjúfa félagslega einangrun.

4. Aðstoð við umönnun barna: þegar fjölskylduaðstæður eru erfiðar s.s. vegna fötlunar, veikinda eða fjölburafæðinga.

6.gr.
Starfsmenn heimaþjónustu

Starfsmenn félagslegrar heimaþjónustu eru starfsmenn Súðavíkurhrepps og taka laun samkvæmt kjarasamningi bæjarins og viðkomandi stéttarfélags. Leitast skal við að ráða fólk til starfa í heimaþjónustu sem hef reynslu af heimilis- og umönnunarstörfum. Starfsmenn heimaþjónustu eru bundnir þagnarskyldu gagnvart þjónustuþegum. Þagnarskylda helst þótt starfsmaður láti af störfum.

7.gr.
Gildistími

Reglur þessar voru samþykktar í félagsmálaráði Súðavíkurhrepps þann 17. september 2008 og í sveitarstjórn Súðavíkurhrepps þann 9. október 2008 og taka gildi 1. nóvember 2008.