Aðalskipulag Tilkynningar

mánudagurinn 5. nóvember 2018

Kynningarfundur á nýju aðalskipulagi Súðavíkurhrepps

Með vísan í grein 4.6 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 verður haldinn kynning á aðalskipulagstillögu á vinnslustigi laugardaginn 10. nóvember 2018 í grunnskólanum í Súðavík kl. 10-12 og í Heydal kl. 15-16.30 

Súðavíkurhreppur er lifandi, kraftmikið og sjálfbært samfélag þar sem allir íbúar geta notið sín.

Framtíðarsýnin byggir meðal annars á vinnu íbúa sem tóku þátt í skipulagsvinnunni, á íbúafundi, skipulagshópum, kynningar og samráðsfundum fyrr í vinnuferlinu.

Aðalskipulagsstefnan markar stefnu um nokkra meginflokka m.t.t. landnotkunar, mannvirkjagerðar og umhverfismála.

Undir hverjum málaflokki eru síðan nokkur viðfangsefni, eins og íbúðarhúsnæði, lóðir, atvinnuhúsnæði, frístundabyggð, landbúnaðarsvæði, auðlindanýting, minjavernd, útivistarsvæði, gatna og vegakerfi, gönguleiðakerfi og veitukerfi.

Á fundi sínum þann 29. október 2018 samþykkti sveitarstjórn að tillaga að aðalskipulagi færi í kynningu á vinnslustigi.  Tilgangur kynningar er að gefa upplýsingar um efni tillögunnar og gefa íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri á að koma að fullmótun tillögunnar nú á vinnslustigi.

 

Aðalskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslu hennar, er því birt nú og er leitað eftir ábendingum í formi hugmynda, tillagna, athugasemda við eða spurninga um efni tillögunnar.

 

Í framhaldinu verður tillagan svo auglýst formlega með tilskildum 6 vikna athugasemdafresti áður en gengið verður frá henni til samþykktar.

 

Hér er slóð á:

  • Skipulagsgreinargerð – tillaga á vinnslustigi
  • Skipulagsuppdrættir
    • Sveitarfélagsuppdráttur (allt sveitarfélagið)
    • Þéttbýlisuppdráttur
  • Umhverfisskýrsla tillögunnar

 

Íbúar Súðavíkurhrepps og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Senda má ábendingar og athugasemdir, en þeim skal skila skriflega til skipulags- og byggingarnefndar, b.t. skipulagsfulltrúa, Grundarstræti 3, 420 Súðavík - eða senda á netfangið sudavik@sudavik.is

í síðasta lagi 10. desember 2018. 

 

 

 

 

 
föstudagurinn 12. maí 2017

Kynningarfundur vegna lýsingar á heildarendurskoðun aðalskipulags, mánudaginn 22. maí, kl. 17

Kynningarfundur vegna lýsingar á heildarendurskoðun á aðalsskipulagi verður mánudaginn 22. maí, kl. 17 í fundarsal sveitarstjórnar, Álftaveri. 

Frestur til að gera athugasemdir vegna lýsingar aðalskipulags verður föstudagurinn 26. maí.

Athugasemdir skulu berast til sudavik@sudavik.is eða at@verkis.is

 
fimmtudagurinn 6. apríl 2017

Lýsing vegna heildarendurskoðunar aðalskipulags Súðavíkurhrepps

Lýsing vegna heildarendurskoðunar á aðlaskipulagi Súðavíkurhrepps er nú auglýst til umsagnar.

 

Hér má nálgast lýsinguna með því að klikka á textann.

 
þriðjudagurinn 17. janúar 2017

Íbúafundi um heildarendurskoðun á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps í Heydal 19. jan, frestað

Íbúafundi um heildarendurskoðun á aðalskipulagi Súðavíkurhrepps í Heydal 19. jan, verður frestað.

Nýr tími verður fundin í kringum Þorrablót Inndjúpsmanna.

Sveitarstjóri

 
fimmtudagurinn 5. janúar 2017

Íbúafundur um heildarendurskoðun á aðalskipulagi fimmtudaginn 19 jan. í Heydal

Íbúafundur um heildarendurskoðun aðalskipulags Súðavíkurhrepps verður haldin fyrir íbúa og hagsmunaaðila Inndjúpsins fimmtudaginn 19. janúar. kl. 13:00.  Fundurinn verður í Heydal.

Fundurinn verður með sama sniði og fundurinn sem haldin var í Súðavík í nóvember liðnum.

Gert er ráð fyrir kynningu á verkefninu, þýðíngu þess og mikilvægi, ferill verkefnsins útskýrður og hver aðkoma ibúa og hagsmunaðila sé.

Þá verður gestum fundarins boðið í hópavinnu þar sem farið er yfir gildandi skipulag og teknar niður hugmyndir inn í nýtt aðalskipulag sem er í vinnslu.

Fundurinn er opin öllum áhugasömum en íbúar og hagsmunaaðilar eru boðaðir sérstaklega.

Sveitarstjóri

                     

Aðrar upplýsingar

Hvað er aðalskipulag?

Samvinna - skipulagshópur

Staðan

Útgefið efni og afurðir

Ýmis gögn

Tilkynningar

Senda ábendingu