Verkvest gefur hlut sinn í Samkomuhúsinu

Þann 22. mars s.l. var undirritaður samningur milli Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Súðavíkurhrepps.  Verkvest gaf hlut sinn í Samkomuhúsi Súðvíkinga til Súðavíkurhrepps.

En, gefum Finnboga Sveinbjörnssyni formanni og framkvæmdastjóra Verkvest orðið.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga á 35% í Samkomuhúsinu og eignaðist þann hlut í gegnum Verkalýðsfélag Álftfirðinga þegar húsið var byggt að upplagi Hanninbals Valdimarssonar.

Þetta mál var rætt í stjórn Verkvest 2011 og þá náðist ekki lending í það skipti þannig að það var ekki fyrr en Bragi Þór Thoroddsen sveitastjóri Súðavíkurhrepps hafði samband að hjólin fóru að snúast á ný.

Nú var málið rætt og kynnt fyrir stjórn Verkvest og það var samþykkt með samtölum við Súðvíkinga. Það var ákveðið að ef Verkvest gæfi eftir sinn hlut í Samkomuhúsinu þá væri það með ákveðnum kvöðum, þ.e. að halda sögu hússins á lofti og til haga.  Það væri settur upp kynningarskjöldur inn í húsinu, byggingarsaga hússins væri kynnt og uppruni þess og einnig yrði sett upp upplýsingaskilti utan húss.  Sigðurður Pétursson sagnfræðingur ætlar að vinna að þessu máli.  Verkalýðshreyfingin á sterka taug til Samkomuhússins í Súðavík. Við erum búin að reyna hittast í tvígang og undirrita samninginn en vegna veðurs höfum við þurft að fresta þar til í dag.  En allt er gott sem endar vel og Súðvíkingar færa Verkalýðsfélagi Vestfirðinga kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf.

Finnbogi og Bragi Þór undirrituðu samninginn og Hulda Gunnarsdóttir og Monica Ribeiro vottuðu undirskriftir þeirra.

ljósmyndir og frétt TH. Haukur