Framtíðarlistinn - X-E fékk góða kosningu í Súðavíkurhreppi, 3 menn kjörna á móti 2 mönnum Fjarðalistans - X-A.
Tekið af vef bb.is
Framtíðarlistinn fékk meirihluta greiddra atkvæða í kosningunum í dag og þrjá fulltrúa í sveitarstjórn.
Fjarðarlistinn fékk tvo fulltrúa kjörna.
Framtíðarlistinn fékk 63,2% greiddra atkvæða og Fjarðarlistinn 36,8%. Kjörsókn var 82,8%.
Af Framtíðarlistanum voru kjörin Kjartan Geir Karlsson, Birta Lind Garðarsdóttir og Jónína Margrét Guðmundsdóttir.
Af Fjarðarlistanum voru kjörin Kristján Rúnar Kristjánsson og Ingibjörg Ásdís Björnsdóttir.
Framboðslista X-A og X-E er að finna hér.
Við óskum framboðunum báðum og fulltrúum þeirra til hamingju með kjörið.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.