Úrgangsmál í Súðavíkurhreppi

Súðavíkurhreppi barst ábending frá Umhverfis- og orkustofnun í tölvupósti þann 8. ágúst 2025 um að ekki væri boðið upp á flokkun sorps utan þéttbýlis í sveitarfélaginu. Ábending um að ekki væri boðið upp á flokkunaraðstöðu á grenndarstöðvum utan þéttbýlis í Djúpinu. Þá var vitnað í samræmi við upplýsingar frá sveitarfélaginu sem fram koma í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024-2025. Aðeins hafa verið gámar ætlaðir blönduðum úrgangi utan þéttbýlis. Þá áréttar stofnunin þá lagalegu skyldu að hafa jafnframt í dreifbýli söfnun á pappa og pappír, plasti, málmum, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum.

Til samræmis við þessa ábendingu verður breyting á söfnun úrgangs í dreifbýli og þar með talið í Djúpi, enda eru sorpmál í þróun hjá Súðavíkurhreppi bæði í þétt- og dreifbýli. Eiga breytingar sér stað í þéttbýli með breyttri umgjörð móttöku úrgangs við hafnarsvæði til samræmis við þær lagalegu skyldur sem hvíla á sveitarfélögum og verður brugðist við þeim ábendingum sem borist hafa. Jafnframt mun sveitarfélagið kappkosta að hafa móttöku og förgun úrgangs til samræmis við þær kröfur sem gerðar eru.

Sveitarfélög hafa í breyttu laga- og reglulgerðarumhverfi verið að þróa sína aðstöðu til móttöku og úrvinnslu og hafa mætt ýmsum áskorunum. Þessu fylgir óhjákvæmilega aukinn kostnaður sem samkvæmt nýju kerfi er óheimilt að greiða öðru vísi en með gjaldsetningu á þá sem nota þá þjónustu. Það er m.ö.o. óheimilt að greiða niður málaflokkinn.

Til samræmis við það sem hér kemur fram verður framvegis það fyrirkomulag, með vísan til þeirrar skráningar að um lögbýli er að ræða með lögheimilsskráningu íbúa, að sorp verður sótt að því staðfangi sem um ræðir og gjaldsetning til samræmis við það sem gildir í þéttbýli. Um leið verður sama fyrirkomulag og í þéttbýli, tunnur fyrir blandaðan úrgang, ílát fyrir lífrænan úrgang og tunna fyrir plast og pappa. Um leið eru í skoðun möguleikar á grenndarstöðvum í Djúpi fyrir móttöku á því sem skyldan segir til um. Að öllum líkindum verður um að ræða samvinnuverkefni Súðavíkurhrepps og Sorpsamlags Strandasýslu við uppsetningu nýrra söfnunareininga og þjónustu. Eins og fram er komið er átak í þessum málaflokki ekki án vaxandi kostnaðar, en lagaskyldan boðar að bregðast þurfi við. Því þarf að finna lausnir sem geta verið millivegur þessa jafnvægis milli kostnaðar og þess sem klárar verkið. En sem fyrr segir, við erum að vinna að því að leysa þessi mál. Erindi hefur verið svarað með ósk um ábendingar um hvort aðgerðir sem stefnt er að leysi málið og þá um leið ábendingar um hvort leysa megi þá málin á annan hátt. 

Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri