Umsögn Súðavíkurhrepp vegna lagareldis
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps telur mikilvægt að frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi verði lagt fram að nýju á haustþingi Alþingis.
Fiskeldi er orðið ein mikilvægasta atvinnugrein Súðavíkurhrepps og hefur haft veruleg áhrif á atvinnulíf, byggðaþróun og verðmætasköpun í sveitarfélaginu. Greinin hefur skapað störf, styrkt tekjugrunn samfélagsins og aukið tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar.
Að mati sveitarstjórnar er mikilvægt að regluverk um lagareldi sé skýrt, fyrirsjáanlegt og styðji við ábyrga þróun greinarinnar. Fyrirliggjandi frumvarp felur í sér mikilvægt skref í þá átt og getur stutt við áframhaldandi vöxt, fjölgun starfa og aukna verðmætasköpun í sveitarfélögum þar sem fiskeldi er stundað.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps leggur áherslu á að við mótun framtíðarregluverks verði gætt að samkeppnishæfni greinarinnar og því að samfélögin sem hýsa starfsemina njóti ávinnings af uppbyggingu hennar.
Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja frumvarp um lagareldi fram að nýju við upphaf haustþings og tryggja að málið fái skjóta og vandaða umfjöllun á Alþingi.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.