87. Þorrablót Súðvíkinga var haldið með miklum sóma laugardagskvöldið 31. janúar s.l. Fjölmenni var og skemmtu gestir sér konunglega yfir frábærum skemmtiatriðum og leikþáttum þorrablótsnefndarinnar og meðhjálpurum þeirra. Efnt var til happdrættis með veglegum vinningum og mæltist það mjög vel fyrir. Úlfar Bragason var tæknimaður og skilaði hann verki sínu með miklum sóma. Hljómsveitin Fagranes sá um að leika undir borðhaldi og á ballinu.
ljósmyndir og frétt Th. Haukur
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.