Tilkynning frá Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps
Samkvæmt lögum eiga sveitastjórnarkosningar að fara fram laugardaginn 16.maí 2026.
Af því tilefni auglýsir Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps eftir framboðum til sveitarstjórnar Súðavíkuhrepps fyrir kjörtímabilið 2026 – 2030.
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar Súðavíkurhrepps er til kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Yfirkjörstjórn veitir framboðslistum móttöku í fundarsal Súðavíkurhrepps í Álftaveri á milli kl. 10.30 – 12.00 þann 10.apríl nk. og áætlar að úrskurða um framboð á þeim fundi.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, lögheimili, kennitölu og stöðu eða starfsheiti hans til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
Upplýsingar um umboðsmenn ásamt samþykki þeirra .
Framboðslisti ásamt undirrituðu samþykki viðkomandi frambjóðanda til framboðs.
Meðmæli með framboði:
Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Island.is eða skila inn á pappír til yfirkjörstjórnar.
Súðavík 7.apríl 2026.
Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps
Lilja Ósk Þórisdóttir, Súðavík
Salbjörg Sigurðardóttir, Súðavík
Snorri Bergsson, Súðavík
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.