Súðavíkurskóli laus störf

Súðavíkurskóli er samrekinn leik- grunn-, og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 25 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan - Virðing – Framfarir – Heiðarleiki.  Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna.

 

Við Súðavíkurskóla eru lausar stöður kennara við leik- og grunnskóla, einnig 50% staða í tónlistardeildina.  Í grunnskólanum er samkennsla árganga, í öllum námsgreinum.  Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn-og leikskóla, reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.  Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám.

Súðavíkurhreppur greiðir laun eftir kjarasamningi KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélag. Umsókn skal skilað til Önnu Lindar Ragnarsdóttur skólastjóra, á netfangið annalind@sudavikurskoli.is og með umskókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til 18.júlí 2025.

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í síma 450-5911, gsm 893-4985 eða í gegnum ofangreint netfang.