Súðavíkurskóla var slitið þ. 29. maí s.l. Við það tækifæri var 135 ára afmæli skólans fagnað og minntist Anna Lind skólastjóri m.a. forvera síns Friðriks Guðjónssonar sem var fyrsti skólastjóri Súðavíkurskóla 1891-1915. og fór yfir sögu skólans. Anna Lind lét af störfum þann 29. maí eftir 36 ára starf, þar af sem skólastjóri í 28 ár. Anna Lind kvaddi nemendur sína og starfsfólk og var leyst út með gjöfum og blómum. Margir fyrrverandi nemendur sendu Önnu Lind kveðjur í tilefni dagsins. Við þökkum henni hjartanlega fyrir afar farsælt starf.
ljósmyndir og frétt Th. Haukur
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.