Skýrsla sveitarstjóra fyrir 49.fund sveitarstjórnar 16.10.26

Skýrsla Sveitarstjóra

 

Lögð fram á sveitarstjórnarfundi á Litlabæ í Skötufirði 16.10.2026 fyrir tímabilið

  1. September til 15 október.

 

Helstu mál tímabilsins

 

Endurbygging Miðgarðs. Útboði vegna endurbyggingar harðviðarbryggjunnar á Miðgarði er lokið og bárust tvö tilboð í verkið. Lægsta tilboðið kom frá heimafyrirtækinu Græjað og gert ehf sem bauð kr. 16.375.000 og er um 73% af kostnaðaráætlun, hitt tilboðið kom frá Sjótækni ehf upp á kr. 20.965.000. Verklok eru áætluð fyrir 1. mai 2027.

 

Fundaröð

23 – 25. Sept fór ég á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri en þaðan er helst að frétta að Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar tók við af Jóni Birni Hákonarsyni ásamt því að ný stjórn var kjörin. Samþykkt var að stefna að því að hækkanir almennra gjaldsrkáa sveitarfélaga verði ekki umfram 2,5% árið 2027 til að vinna gegn verðbólgu. Kallað var eftir stórauknu samráði, skýrari verkaskiptingu og betra samstarfi ríkis og sveitarfélaga (gamall söngur) ásamt því að mótuð var stefna Sambandsins fyrir næstu fjögur ár með áherslu á eflingu sveitarstjórnarstigsins og grunnþjónustu.

7 Okt. Sótti ég þrjá fundi en þá fór ég á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum þar sem ársreikningur og fjárhagsáætlun var til umfjöllunar ásamt orkukostnaði og hagsmunir sveitarfélaga án hagkvæmrar hitaveitu.

Sama dag var svo aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, helstu áherslurnar þar voru skýrari löggjöf um fiskeldi, aukið samráð við sveitarfélög og áhrif veiðigjalda á sjávarbyggðir.

Í lok dags var svo ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar tilkynnti innviðaráðherra um hækkun almennra jöfnunarframlaga um 1,4 milljarða króna í samtals 29,6 milljarða árið 2026. Sjóðurinn skilaði um 1,1 milljarðs króna afgangi árið 2025, og úttekt var á nýju jöfnunarlíkani sem á að auka gagnsæi og jafnræði. Boðuð var endurskoðun framlaga vegna grunnskólarekstur og þá sérstaklega með tilliti til dreifðra byggða.

8 - 9. Okt var fjármálaráðstefnan haldin í Vör sem er ný farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa í Skarfabakka í Reykjavík. Rætt var um fjárhagsstöðu, skuldsetningu og fjármagnskostnað til að mynda þar sem Daði Már fjármála- og efnahagsráðherra tók undir með sveitarstjórnarfólki sem lagði áherslu á mikilvægi þess að tekjur fylgi verkefnum sveitarfélaga sem þeim væru falin. Í menntamálunum var rík áhersla lögð á aukið hlutverk sveitarfélaga í stefnumótun menntamála enda fer ríflega helmingur skatttekna þeirra í málaflokkinn. Fundirnir voru fróðlegir og gagnlegir og gáfu góða yfirsýn yfir stöðu og helstu hagsmunamál sveitarfélaga.

 

Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Alþingi hefur samþykkt breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem taka gildi 1. Janúar 2027. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verða lagðar niður og verkefni þeirra færast meðal annars til Umhverfis- og orkustofnunar og Stofnunar atvinnuveganna sem tekur við matvælaeftirlitinu. Sveitarfélögin þurfa í kjölfarið að yfirfara samþykktir sínar og tryggja áframhaldandi utanumhald þeirra verkefna sem verða áfram á þeirra ábyrgð.

 

Framkvæmdir á Langeyri við nýju kalkþörungaverksmiðju Íslenska kalkþörungafélagsins ganga samkvæmt áætlun. Stefnt er að því að byggingu hússins ljúki um áramótin 2026-2027 en í kjölfarið hefst uppsetning verksmiðjubúnaðar. Áætlað er að prófanir hefjist um mitt ár 2027.

 

 

Nýir brunahanar. Græjað og Gert fór af stað í viðhald á brunahönum og búið er að setja upp 2 nýja brunahana í gamla þorpinu ásamt því að steypa undirstöðurnar.

 

Hvalaskoðunasamtök Íslands höfðu samband og óskuðu eftir samtali varðandi tækifæra í hvalaskoðun í Djúpinu. Ég tók fagnandi á móti erindinu þar sem hvalaskoðun gæti verið áhugavert tækifæri fyrir Súðavíkurhrepp bæði til að efla ferðaþjónustu, fjölga atvinnutækifærum og styrkja Súðavík sem áfangastað við Djúpið.

 

 

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin PIFF fór fram dagana 8 – 11 október að mestu á Ísafirði en einnig var boðið upp á kvikmyndasýningar í Súðavík og á Þingeyri. Hátíðin er kærkomin viðbót við menningarlíf á svæðinu og ánægjulegt að Súðavík taki þátt í þessum alþjóðlega viðburði. Sérstakar þakkir fær Þorsteinn Haukur Þorsteinsson fyrir utanumhald, metnað og elju við framkvæmd sýninganna í Súðavík. Slíkt framtak er afar dýrmætt fyrir menningarlíf samfélagsins.

 

 

 

 

 

Lokaorð

 

Þetta tímabil hefur að stórum hluta farið í fundi, ráðstefnur og ferðalög. Þótt slík vinna sé ekki alltaf jafn sýnileg í daglegum rekstri sveitarfélagsins er hún mikilvægur þáttur í því að gæta hagsmuna Súðavíkurhrepps. Það skiptir máli að rödd lítilla sveitarfélaga heyrist þegar teknar eru ákvarðanir um fjármögnun, grunnþjónustu og framtíð sveitarstjórnarstigsins.

Samhliða þessu halda verkefnin hér heima áfram, bæði stór og smá. Fram undar er að vinna úr þeim upplýsingum og samtölum sem þessir fundir hafa skilað og fylgja áfram eftir þeim fjölmörgu verkefnum sem eru í gangi í hreppnum.

Það er nóg um að vera og margt spennandi fram undan, áfram gakk.

 

Súðavík 16 október 2026

 

Elísabet Margrét Jónasdóttir