Skýrsla sveitarstjóra fyrir 44. fund sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps

Hluti hópsins sem útskrifaðist af námskeiðum í íslensku frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða þann 21. apríl ásamt kennurum.
Mánudagurinn eftir síðasta fund sveitarstjórnar hófst á fundi um almyrkva – starfshópurinn sem var stofnaður um viðburðinn. Fram er komið að skipulagning er farin að ná utan um verkefnið og hafa verið haldnir fundir með helstu viðbragðsaðilum á svæðinu. Eins og sveitarstjórn hefur verið upplýst um þá verður okkar safnstaður fyrir fólk í Raggagarði sem ætti að vera nokkuð vel til þess fallinn.
Þriðjudaginn 14. apríl var svo fundur sem bar yfirskriftina Velferð og vá og var fundurinn haldinn á Ísafirði í húsnæði Vestfjarðastofu. Ágætis yfirferð um margt sem snýr að bæði velferðarmálum og viðbragðsaðilum. Í framhaldinu var svo 25. fundur svæðisskipulagsráðs og var sá fundur haldinn á sama stað. Útlínur svæðisskipulags orðnar nokkuð endanlegar og var uppleggið að ná þeim inn til samþykktar hjá sveitarstjórnum fyrir sveitarstjórnarkosningar.
Miðvikudaginn 15. apríl var svo formlega tekin fyrsta skóflustunga að nýrri kalkþörungaverksmiðju við Langeyri. Fyrst var athöfn á landfyllingunni þar sem fulltrúar Marigot og Ískalks ásamt fulltrúum Lakogép tóku fyrstu skóflustunguna og hornsteinn var lagður að byggingunni. Að því loknu var öllum boðið í móttöku í Súðavíkurskóla þar sem boðið var upp á fróðleik og spjall um væntanlega starfsemi og uppbyggingu. Vel mætt og flott í alla staði.


Skóflustungan 15. apríl 2026 á landfyllingunni við Langeyri – vel mannað.
Þann 16. apríl mættu fulltrúar Ískalks, Halldór Halldórsson og Tryggvi Bjarnason, ásamt fulltrúum Marigot, Michael Ryan og David Butler, til þess að þakka sveitarstjóra samstarfið og það sem þegar hefur verið unnið. Samstarf sveitarstjóra við Halldór Halldórsson og svo Micheal Ryan spannar nú um 6 ár, allt frá aðdraganda að fyrstu skrefum yfir í samningsgerð milli aðila og svo skipulagsferli og gerð landfyllingar. Á þessum tíma hefur sveitarstjóri setið með þeim fjölda funda, bæði samningafundi og verkfundi. Þá hafði sveitarstjóri aðkomu að fundum þeirra með Orkubúi Vestfjarða og amk tveggja ráðherra, Þórdísi Kolbrúnu og Guðlaugi Þór, við að liðka fyrir þeim málum sem til þurfti að koma verkefninu á framkvæmdastig. Ýmislegt hefur komið upp á þessum tíma í samstarfinu, bæði átök og svo samstaða þar sem það hefur átt við.
Framkvæmdir eru hafnar af alvöru og hefur verið unnið næstum alla daga við grunn og undirstöður fyrir verksmiðjuhúsið. Búið er að steypa hluta af undirstöðum/sökklum og unnið við að efnisskipta og hækka undir byggingarnar í landslagi.
Um miðjan apríl kom nýr starfsmaður til starfa fyrir Súðavíkurhrepp. Brian Lynn Thomas hefur verið ráðinn til þess að gegna starfi umsjónarmanns fasteigna. Brian hefur þegar hafið störf og notið leiðsagnar þeirra Guðrúnar Halldórsdóttur og Runólfs Georgs Karlssonar auk þess sem sveitarstjóri hefur lagt línurnar varðandi starfið. Brian hefur lokið vinnuvéla-námskeiði og bíður eftir að komast á námskeið til löggildingar vigtarmanns.
Sunnudaginn 19. apríl þáði sveitarstjóri heimboð í Reykjanes í aðstöðu Saltverks. Með í för voru tveir frambjóðendur úr Súðavík. Í Saltverki vinna um 13 manns að staðaldri, en fólkið býr allt á staðnum. Uppistaðan er fólk frá Úkraínu og Búlgaríu auk Serbíu. Í Reykjanesi búa einnig 3 börn sem eru fæddir nýjir íbúar í sveitarfélaginu.
Framleiðsla Saltverks er seld bæði innanlands og utan, en uppstaða tekna kemur frá sölu í Bandaríkjunum. Innanlandssalan rétt stendur undir kostnaði við framleiðslu meðan útflutningur skilar mestu. Send eru út nokkur bretti af vörum í hverri viku og stefnir ársveltan fyrir árið 2026 í yfir 1.000.000.000.- kr. og fellur Saltverk þar undir þau fyrirtæki Vestfjarða með mesta veltu, en um leið er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður Súðavíkurhrepps.



Vörur Saltverks í pökkun og afurðin komin á bretti og bíður útflutnings.



Flögusaltið veitt úr keri þar sem uppgufun fer fram og afurð komin í nýjar neytendapakkningar fyrir bandaríkjamarkað.
Eigendur Saltverks ásamt þeirra hægri hönd, Petar Štakić, mættu svo til fundar við sveitarstjóra stuttu síðar (viku) til að ræða málefni fyrirtækisins og samvinnu við Súðavíkurhrepp. Kom fram að ýmislegt sem snýr að skipulagsmálum og vatnsmálum er þeim hugleikið, en í flestu ættu hagsmunir að geta farið saman. Framundan er að tryggja þeim aðgengi að íslenskukennslu, tengingum við björgunarsveit og fleira sem mætti betur fara.
Miðvikudaginn 22. apríl var haldinn fundur með Hagvís, en fyrirtækið mun sjá um að útvega búnað til lokunar hafnarsvæðis og uppsetningar á rafstýrðum hliðum og eftirlitsbúnaði. Lausnin felst í því að setja upp hliðgrindur sem loka af þekjunni og hafnarkantinum með rennihliðum sem unnt er að hafa opin tímabundið eða sjálfvirk þess á milli. Kostnaður er um 8,5 mkr. og uppsetning verður í höndum Búaðstoðar. Einnig verður sett upp gönguhlið á þann part (tromla) sem hægt er að monitora og stýra eftir því sem þörf verður, hvort sem er fyrir farþegaskip eða vegna tollunar erlendra skipa. Þá verður sett upp hliðslá þar sem ekið er inn á hafnarsvæðið við Langeyri. Búaðstoð mun sjá um uppsetningu fyrir Hagvís.

Hliðgrind verður sett upp á veginn við innkom á landfyllingu og svo girðing sem lokar viðlegukanti, en hlið á miðju og gönguhlið sunnantil á viðlegukant með tromlu sem verður rafstýrð og monitoruð.
Langeyri: Sveitarstjóri er búinn að eiga nokkra fundi í mánuðinum, bæði í síma og staðfundi, með fulltrúa Vegagerðarinnar vegna verkefna við Langeyri. Af málefnum sem varða Langeyri má nefna að búið er að semja við verktaka um lagningu jarðstrengs milli Ísafjarðar og Súðavíkur þar sem Þjótandi var lægstbjóðandi, búið er að bjóða út þekju við hafnarkant við Langeyrarhöfn og hefur verið gengið til samninga við Geirnaglann ehf. á Ísafirði um það verk. Köfunarþjónustan mun sjá um að setja sink (fórnarskaut) á stálþilið við Langeyarhöfn samkvæmt samkomulagi við Vegagerðina. Nýir pollar er komnir fyrir viðlegukantinn og lagnateikningar fyrir vatn, rafmagn og fráveitu liggja fyrir.
Samþykkt var á fundi Langeyrar ehf. (fyrr á árinu) að hækka húsaleigu fyrir iðnaðarbil um 30%. Leiga hefur ekki verið hækkuð fyrir utan vísitölutengingu og hefur verið mjög lág. Sveitarstjóri leggur til að það verði staðfest af sveitarstjórn svo unnt sé að hrinda því í framkvæmd að innheimta samkvæmt ákvörðun fundar.
Sunnudaginn 3. maí var haldinn kynningarfundur um tillögur að breytingum og endurbótum á Samkomuhúsi Súðavíkur. Grunnteikningar eftir uppmælingu komu frá Sei Arkitektum seinnihluta mars en óskað var eftir frekari breytingum á þeim eftir fund sveitarstjóra og Vestfirskra verktaka. Teikningum var speglað hvað varðar salernisaðstöðu í anddyri og ramp í framhaldi af pallinum ofanvert við húsið. Milli 10 og 15 manns mættu á kynninguna auk sveitarstjóra og fulltrúa Vestfirskra verktaka. Niðurstaðan var að halda sig að mestu við teikningar frá Sei Arkitektum eins og þær líta út eftir breytingar. Þá var það mat fundarins að sníða Vestfirskir verktakar munu því halda áfram með verkið og reyna að haga framkvæmdum til samræmis við fyrirhugaða notkun hússins í sumar.

Teikningar fyrir hugmyndavinnu við endurbætur og viðhald á Samkomuhúsinu sem skoðaðar voru og kynntar á samráðsfundi í Álftaveri.
Fimmtudaginn 7. maí var haldinn fundur bæjar- og sveitarstjóra með Vestfjarðastofu, en um er að ræða fundi sem að jafnaði fara fram hálfsmánaðarlega. Þetta var síðasti fundurinn hjá þessum hópi enda kosningar framundan. Farið yfir þau verkefni sem lögð voru fyrir bæjar- og sveitastjóra til þess að taka á samvinnuvettvangi Fjórðungssambandsins. Rætt var um hvernig til hefur tekist og um form svona samvinnu. Við höfum unnið að loftslagsstefnu, samvinnu í úrgangsmálum, svæðisskipulagi o.fl. Svæðisskipulag er klárt til samþykktar formlega af hendi sveitarfélaganna og verður á dagskrá þessa fundar. Mikilvægt er að afgreiða það formlega og svo tekur við ný stjórn (ráð) á vettvanginum til þess að fylgja þessu úr hlaði og vinna eftir því. Formlegir fundir í gerð svæðisskipulags eru 26, en fjölmargar kynningar – opnar og fyrir kjörna fulltrúa auk frekari kynninga í vinnsluferlinu. Þá hefur verið opið fyrir umsagnir á vinnslutíma og komið að því að samþykkja það sem að baki er. Kostnaður við verkefnið var yfir 130 mkr. og því mikilvægt að nálgast þetta af ákveðinni virðingu.
Síðar þann sama dag var haldinn fundur í skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefnd í fjarveru byggingafulltrúa sem er upptekinn á bjarstjórnarfundi. Fyrir liggja tvö mál sem þarf að afgreiða; umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengs milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar og svo umsóknir um lóðir í Súðavík. Mikilvægt að afgreiða bæði málin með einhverjum hætti enda síðasti fundur sveitartjórnar í dag og ekki komin saman starfhæf sveitarstjórn fyrr en eftir nokkrar vikur og sama á við um nefndir. Það er ekki gott innlegg að taka töf um kannski einn og hálfan mánuð á afgreiðslu framkvæmdaleyfis fyrir lagningu jarðstrengsins, enda eru tímamörk á þeirri framkvæmd sem þurfa amk því sem næst að standast. Varðandi umsóknir um lóðir þá er þetta mikilvægt skref í því að hefja uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Súðavík, en umsækjandi eru Vestfirskir verktakar.
Þann 8. maí var fyrirhugaður fundur í stjórn Melrakkaseturs. Mikilvægt er að klára stefnu um Melrakkasetur ehf. og ákveða rekstrar- og stjórnunarlegt fyrirkomulag. Staðan í dag er sú að Súðavíkurhreppur á Eyrardalshúsið, Melrakkasetur ehf. hefur húsið til umráða en rekstraraðili – Félagar ehf. fer með rekstur og leigir af Melrakkasetri ehf. samkvæmt rekstrarsamningi. Félagar ehf. greiðir leigu beint til Súðavíkurhrepps sem eiganda hússins og Félagar ehf. greiða hlutdeild af rekstrarinnkomu til Melrakkaseturs ses. Til þess að tryggja einhvern fyrirsjáanleika verður gerður lengri samningur við Félaga ehf., til 4 ára að þessu sinni. Félagar ehf. eru að byggja upp ferðaþjónustutengda starfseminni til þess að gera reksturinn fyrirsjáanlegri og bjóða upp á aukna þjónustu í Súðavík með gistirými sem er af skornum skammti. Samstarfið hefur gengið með ágætum og hefur skilað viðunandi hlutdeild og tryggt rekstur Melrakkaseturs ehf., en þar fer Súðavíkurhreppur með nærri 50% eignarhlut.
Af helstu verkefnum innan þorps eru það sorpmál í víðum skilningi. Sorpsvæði við Njarðarbraut hefur verið hreinsað og öll ílát tæmd. Moltugerðin verður komin í gangið eftir nokkra daga en langt er um liðið síðan fötur voru pantaðar fyrir söfnun lífræns úrgangs. Mikil tiltekt er yfirstandandi, við Langeyri og um allt þorp svo og hafnarsvæði.
Annars hefur verið svo miklu meira að gerast en það sem hér kemur fram en verður ekki í skýrslu sveitarstjóra.
Bragi Þór Thoroddsen - sveitarstjóri
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.