Skýrsla sveitarstjóra spanar tímabilið milli reglulegra funda sveitarstjórnar, frá 13. mars til 10. apríl 2026.

Fiskeldissjóður: Undanfarnar vikur hefur sveitarstjóri verið í samskiptum við sjóðinn með skilum á lokaskýrslum til þess að klára verkefnin og fá greiddan síðari hluta styrks í hvert verkefni, en fyrirkomulag styrkja er að greiða helming við undirritun og svo rest við skil lokaskýrslu. Innan þess eru smitvarnir, lokun við norðurgarð Súðavíkurhafnar og slökkvibifreið fyrir Slökkvilið Súðavíkurhrepps. Verkefnum er lokið og greitt hefur verið fyrir skil á lokaskýrslum. Áfangaskýrslu / stöðuskýrslu var skilað fyrir heita potta og óskað eftir framlengdum fresti til skila lokaskýrslu, með áherslu á að opnun pottaaðstöðu verði í maí 2026.
Verkefni vegna uppbyggingar húsnæðis í Súðavík var ekki samþykkt, enda ekki á fjárhagsáætlun eða framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins eins og reglur sjóðsins fyrir árið 2026 gera ráð fyrir. Ákvörðun um uppbyggingu var ekki samþykkt af sveitarstjórn fyrr en eftir að gerð fjárhags-áætlunar 2026 var lokið. Styrkhæf verkefni vegna endurbóta og endurbyggingar við Samkomuhús Súðavíkur og aðstöðu fyrir líkamsrækt. Sjóðurin styrkti endurbætur við Samkomuhús um 24.922.879.- kr. og líkamsrækt um 14.241.645.- kr., en bæði verkefni voru á fjárhagsáætlun Súðavíkurhrepps fyrir árið 2026.
Samkomuhús Súðavíkur: Sveitarstjóri hefur verið í samskiptum við arkitekta vegna endurnýjunar og viðgerðar á Samkomuhúsi Súðavíkur. Sótt var um í Fiskeldissjóð fyrir verkefninu en ljóst er að afstaða stjórnar sjóðsins var sú að aðallega sé um að ræða endurbætur / viðgerð og því óvíst hvernig sú nálgun yrði við úthlutun. Sveitarstjóri skilaði inn viðbótarathugasemdum varðandi verkefnið, þar sem um endurbyggingu er að ræða. Á það var fallist af stjórn sjóðsins.
Eins og fram er komið var gefið út að tvö verkefni hafi verið samþykkt, þ.e. líkamsrækt og endurbygging Samkomuhússins. Fram eru komnar teikningar/hugmyndir að útliti og gerð endurbóta frá Sei arkitektum. Taka verður mið af notkun Samkomuhússins varðandi framhald framkvæmda, en klára þarf að ganga frá wc-aðstöðu í anddyri svo unnt sé að nota húsið milli þess sem farið verður í verkið. Teikningar frá Sei voru afhentar Vestfirskum verktökum til að vinna áfram tillögu að frágangi rýmis við inngang. Hugmyndin er að halda fund (opinn fund) og fara yfir þær tillögur.
Langeyri: Búið er að bjóða út þekju og vegagerð við Langeyrarhöfnina. Lakogép er á staðnum með fjármálastjóra ofl. Þegar þetta er ritað áttu 8 fulltrúar verktakans að koma til Súðavíkur, smiðir. Vinna við grunna að verksmiðjuhúsi hófust þriðjudaginn eftir páska. Stefnt er að því að taka fyrstu skóflustungu að verkinu miðvikudaginn 15. apríl og er sveitarstjórn boðið á þann viðburð og verður gert ráð fyrir að íbúar séu þar velkomnir. Viðburðurinn verður auglýstur eftir helgina.
Súðavíkurhöfn: Undanfarnar vikur og mánuði hefur staðið yfir viðgerð á stálþilinu á norðurgarði Súðavíkurhafnar. Þilið var mjög illa farið, allir stigar ryðgaðir og ónýtir og efni búið að leka út úr höfninni við þilið. Ljóst er að ítrekað hafa skip rekist utan í stálþil, líklega með perustefni þar sem hluti skemmda var undir sjólínu, og skekkt og undið stálþilið þannig að það gapti á milli á köflum. Köfunarþjónustan hefur lokið viðgerðum og hafa sett stiga á bryggjuna þannig að næsta skref er að klára að dekkja upp og keðja. Keðjur eru tilbúnar og dekk verða klár fljótlega. Súðavíkurhreppur hefur lagt út fyrir framkvæmdunum og mun Vegagerðin greiða til baka 75% af framkvæmdinni síðar á þessu ári.


Umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga: Sveitarstjóri fór yfir frumvarp og greinargerð en efnið er um 200 bls. samanlagt. Nokkur atriði liggja fyrir sem teljast til grundvallarbreytinga á milli gildandi sveitarstjórnarlaga og þess sem fram kemur í frumvarpinu. Af samskiptum milli sveitarstjórnarfólks sem hafa haft með sér samstarf undanfarin ár kom fram tillaga um að leita til Guðjóns Bragasonar lögfræðings, en hann er fyrrum lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Guðjón þekkir vel sveitarstjórnarlögin og kom að setningu gildandi laga. Hlutur Súðavíkurhrepps í vinnu Guðjóns var um 25 þúsund kr.
Helstu breytingar eru á sviði samstarfs sveitarfélaga og kostnaðarskiptingu við samvinnuverkefni, en það nýnæmi hefur komið fram að raunkostnaður eigi að vera hlutur hvers og eins. Hefur því verið hreyft að ekki geti verið við það unað að fjölmennari sveitarfélögin í því samstarfi eigi að niðurgreiða hlut fámennari sveitarfélaga. Hingað til hefur verið stuðst við mannfjölda að baki hverju sveitarfélagi með allri þeirri óvissu um hvar kostnaður kemur niður. Þetta er hrein og klár firra enda hefur til langs tíma verið skipt í á þennan veg um öll óvissuverkefni, þar sem ekki er séð fyrir hver hlutur hvers og eins yrði.
Þá er ýmislegt varðandi stjórnsýslu og íbúalýðræði fest í sessi með nýju frumvarpi, um kosningu almennings í nefndir og ráð fyrir utan hreina nefndasetu í sveitarstjórnum. Hvað varðar fjármálahlutann er lagt til að jafnvægisregla (regla um skuldaviðmið sveitarfélaga) taki til bæði A- og B- hluta og lagt til að nýr C-hluti komi til, sem er starfsemi sveitarfélaga á samkeppnisgrundvelli (fyrirtæki á markaði) og svo, að jafnvægisregla í fjármálum sé miðuð við 110 % af veltu hvers árs í stað 150% skuldaviðmiðs. Þetta er þó eitthvað óljóst og má lesa út úr þessu lendingu við 130%. Fleiri breytingar eru í frumvarpinu en þeim verða gerð frekari skil fyrir sveitarstjórn með vísan í umsögn fyrir hönd Súðavíkurhrepps, en umsögn hefur verið send sveitarstjórn ásamt greinargerð Guðjóns Bragasonar.
Langeyri: Undanfarnar vikur hafa fulltrúar Lakogep verið í Súðavík til þess að undirbúa komu verktakans að reisa húsnæði undir kalkþörungaverksmiðju. Búið er að koma fyrir 12 gámaeiningum við Langeyri neðan við atvinnuhúsnæði, en þar verða skrifstofur og geymsluhúsnæði. Unnið hefur verið að tengingu vatns, rafmagns og fráveitu frá vinnubúðunum. Þá eru komnir gámar á landfyllingu og meira væntanlegt.
Sveitarstjóri hefur í samráði við Vegagerðina, – Kjartan Elíasson sérfræðing hafnasviðs, sótt um heimtaug fyrir veituhús á höfninni. Þá hefur verið klárað að setja saman útboð fyrir steypta þekju við hafnarkant sem þegar hefur verið birt. Sveitarstjóri fer svo yfir útboðsmál vegna vatnslagnar að Langeyri í samvinnu við byggingafulltrúa.
Miðvikudaginn 15. apríl verður svo formleg skóflustunga af hendi Lakogép. Sveitarstjórn o.fl. er boðið að vera vistödd við Langeyri og svo í framhaldinu í sal Súðavíkurskóla þar sem einhver dagskrá verður, framsaga, spurningar og svör.
Orkubú Vestfjarða – Réttarholt: Frá því seint á síðasta ári hefur verið krafa frá Orkubúi Vestfjarða að sveitarfélagið leggi vatnslögn að Réttarholti fyrir kælivatn á varaaflsvélar OV. Síubúnaður við inntak í stíflu er ónýtur og hefur verið svo um langan tíma að því er virðist. Búið er að leggja í endurgerð þess en í millitíðinni lögð lögn að varaafli þannig að kælivatn fyrir varaafl er tryggt.
BS Vest – slit á byggðasamlagi: Fyrir liggur erindi til aðildarsveitarfélaga sem stóðu að BS Vest, eða Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks. Félagið var í raun lagt niður og starfseminni komið í hendur Ísafjarðarbæjar sem leiðandi sveitarfélags árið 2022/2023 með breytingum á lögum sem oftast eru kennd við frumvarp um Farsæld. Félagið var komið í töluverðan ólestur og ýmislegt sem hefði betur mátt fara. Til stendur að leggja niður samlagið og gera það upp með uppgreiðslu inneignar í hlut hvers og eins aðildarsveitarfélags og inn á hvert svæði eftir atvikum. Rekstrarkostnaður er einhver en inneing í félaginu á móti. Nánar verður gerð grein fyrir þeirri stöðu þegar uppreiknun liggur fyrir.
Um slit á Byggðasamlagi Vestfjarða fer samkvæmt 95. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 sbr. Úrganga úr byggðasamlagi og slit byggðasamlags.
Fundir: Sveitarstjóri hefur setið nokkra fundi á því tímabili sem um ræðir. Fyrsti fundurinn var mánudaginn 16. mars – 5. fundur Starfshóps um almyrkva. Fundurinn er í raun í beinu framhaldi af þeim lið í dagskrá 42. fundar sveitarstjórnar. Áhersla var á m.a. að tryggja safnstaði og upplýsingar frá sveitarfélögunum sjálfum. Fyrir liggur samþykki fyrir að hafa safnstað í Súðavík í Raggagarði, enda fáir staðir jafn vel til þess fallnir að taka á móti hópi fólks, bæði fullorðnum og börnum og aðkoma að svæðinu nokkuð opin. Næsti fundur var þriðjudaginn 17. mars með stjórn Fiskeldissjóðs til þess að fara yfir verkefni sem sótt var um í sjóðinn sem fyrr er gerð grein fyrir. Miðvikudaginn 25. mars var fundur í stjórn Byggðasafns Vestfjarða og þann 31. mars fundur í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga og Vestfjarðastofu.
Erindi vegna Vigur: Þann 15. mars sendi lögmaður eigenda Vigur bréf til sveitarstjórnar þar sem lagt er upp með einhvers konar sáttaleiðar vegna bryggjumála í Vigur. Sveitarstjóri hafði áður í samtali við lögmanninn samþykkt að hitta þau ef vilji væri fyrir hendi til þess að fara yfir erindið og það sem áður hefur gerst í málefnum sem tengjast bryggjuaðstöðu í eynni. Sveitarstjóri lýsir sig reiðubúinn að hitta þau með framangreint í huga án einhverra skuldbindinga.
Uppbygging húsnæðis í Súðavík: Sveitarstjóri hefur tekið saman minnisblað um uppbyggingu húsnæðis í Súðavík. Kynntar verða á fundinum teikningar og skilaskýrsla fyrir húsnæði sem Vestfirskir Verktakar eru að bjóða. Áður hafði verið óskað eftir sambærilegu frá Húsasmiðjunni. Húsnæðisliðurinn var tekin fyrir formlega á 43. fundi sveitarstjórnar.
Erindi frá Velferðarnefnd – Ísafjarðarbær: Sveitarstjóri ræddi við Margréti Geirsdóttur varðandi velferðarþjónustuna. Fjallað er um þetta í fundardagskrá. Varðar aðallega breytingar sem fylgja samstarfi og rekstri Velferðarþjónustu Vestfirðinga, beiðni um að samþykkja aukin stöðugildi til þess að sinna verkefnum velferðarmála.
Svæði við Njarðarbraut: Mikið hefur verið um fyrirspurnir og umræður um svæði við Njarðarbraut þar sem Arctic Fish og Háafell hafa nýtt svæðið til þess að geyma fiskeldisbúnað. Kvartað var um ásýnd þessa svæðis í sumar af íbúum í gömlu Súðavík. Fjallað var um þetta á 49. fundi skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefndar þann 20. desember 2025 og fundargerðin staðfest af sveitarstjórn á 39. fundi sveitarstjórnar þann 12. desember 2025. Í fundargerð er bóka að svæðið verði lokað af með skjólvegg. Ákveðið var að setja upp annað hvort girðingu umhverfis svæðið til þess að blinda það aðeins eða brjóta upp útsýnið á annan hátt. Áformin voru lögð fyrir Vegagerðina til blessunar á verkefninu, enda svæðið að mestu innan veghelgunarsvæðis. Vegna verkefna við landfyllinguna við Langeyri var ljóst að efni félli til þar sem þyrfti að farga eða færa til. Var því nærtækast með litlum tilkostnaði að koma efninu fyrir um leið og unnt væri að setja upp mön til þess að sinna þessu sama hlutverki. Það vinnst ýmislegt með því umfram uppsetningu á girðingu (skjólvegg) þar sem nýta má tækifærið til þess að ganga almennilega frá svæði milli þjóðvegar og „geymslusvæðis“. Til þess að gera svæðið þannig úr garði að það geti þjónað þessu hlutverki var ákveðið að skoða þann möguleika að Arctic Fish og/eða Háafell myndu standa straum af kostnaði við að efnisskipta á svæðinu. Kostnaður við að efnisskipta er rétt um 2 mkr. Árlegt afgjald af geymslu fiskeldisbúnaðar er um 8-900 þúsund og undir það eru lagðir um 800 m². Hins vegar er ljóst að ákveðinn misskilningur er uppi varðandi þau áform og hefur sveitarstjóri fengið ítrekaðar fyrirspurnir um af hverju sé ekki verið að fylgja því eftir sem bókað var á fundi skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samöngunefndar um að setja upp girðingu í stað manar. Allt snýst þetta um að gera þetta með sem hagkvæmustum hætti og um leið að snyrta umhverfið og ásýnd Súðavíkur. Skjólveggur getur verið settur upp með ýmsum hætti. Fyrirfram var vitað að uppleggið var að setja upp blindun á svæðið þannig að ekki blasti við drasl eða búnaður, eftir því hvernig á það er litið. Um svæðið hefur ekki verið sérstakur samningur annar en munnlegur. Með stuttum fyrirvara lá fyrir að fiskeldisbúnaður kæmi til landsins með skipi frá Noregi. Það kom fram í samtölum við Háafell að þetta væru nokkur hundruð tonn af búnaði, annars vegar til Háafells og hins vegar Arctic Fish.
Upphaflega fengu fyrirtækin tímabundið leyfi til þess að setja þetta niður við Njararbraut. Báðum aðilum var gert ljóst að greiða þyrfti fyrir stöðuleyfi sem jafnframt væri verið að útrýma í Súðavík. Til þess hafði verið útbúið geymslusvæði í Árdal. Til þess að pressa á að búnaður yrði aðeins tímabundið var verðið yfir 100 kr pr. m², sem er liðlega tvöfalt það sem greitt var á þeim tíma fyrir geymslu í Árdal eða stöðuleyfi fyrir gám. Jafnframt var mælt og gjaldsett svæði sem Háafell lagði undir sig við Norðugarð Súðavíkurhafnar. Þar sem búnaðurinn hefur ekki verið fjarlægður í heild sinni hefur verið rukkað fyrir notkun á svæðinu, rétt um 900.000.- kr. á ári. Horfa verður á þessa gjaldsetningu í samræmi við það svæði sem úthlutað er.
Skýrsla sveitarstjóra er í samræmi við það sem lagt var fram á 43. fundi sveitarstjórnar í dag, þann 10. apríl 2026, en staðfært og uppfært auk lagfæringar á innsláttarvillum.
Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.