Skýrsla sveitarstjóra fyrir 41. fund sveitarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026

Skýrsla sveitarstjóra fyrir 41. fund sveitarstjórnar 13. febrúar 2026

 

Vikan 12. – 16. janúar

Almyrkvi á sólu: Vikan hófst á fundi með sólmyrkvahópnum á mánudeginum. Búið er að setja hópnum það verkefni að finna safnastaði fyrir þann mannfjölda sem mun sækja í viðburðinn. Flestir voru á því að setja inn upplýsingar á kort á heimasíðu sveitarfélaganna og setja QR-kóða sem yrði límdur á pakkningar með sólmyrkvagleraugunum.

EFLA: Fundur  með Gagnalandi – þeim hluta EFLU sem sér um uppsetningu á búnaði og setur upplýsingar í kortasjá á kort.is – framundan er að setja allar veitur inn á kort; vatn, rafmagn, fráveitu, brunna, borholur og annað sem við viljum hafa í kortagrunninum. Upplausn í korti er mjög góð og verður gott vinnutæki við hvers konar framkvæmdir og viðhald gatna og veitna.

Hvalreki: Sveitarstjóri og umsjónarmaður fasteigna höfðu samband við Landhelgisgæsluna vegna aðstoðar við að koma böndum á hvalrekann. Um hvalreka gilda reglur enda yfir 20 aðilar sem koma að strandi lifandi hvals. Þá er til hjá Hafrannsóknarstofnun yfirlit (verklagsreglur) vegna hvalreka. Sjá hér. Aðilum fækkar niður í um 7 þegar staðfest er að hvalur sé dauður en málið lagast ekki við það. Standa þarf að förgun hvalhræs eftir fyriframákveðnum reglum og þarf því að skoða þær í framhaldinu. Líklegasta niðurstaðan er að hvalurinn verði dreginn út á rúmsjó.

Lagareldi:Sveitarstjóra barst boð frá Atvinnuvegaráðuneytinu með erindi um fundarboð á teams. Er uppleggið frumvarp til lagareldislaga sem er í samráðgátt stjórnvalda. Ýmsar nýjungar og breytingar eru lagðar til með frumvarpinu og m.a. breytingar á Fiskeldissjóði. Einnig eru tillögur að umgjörð fiskeldis og nærtækastar breytingar sem lúta að sjókvíaeldi. Fundur verður haldinn þann 20. janúar, bæði í fjarfundi og staðfundi í ráðuneyti.

16. janúar hefur talsvert djúpa merkingu í Súðavík. Kveikt var á kertum við stjórnsýsluhúsið sem virðingarvott við þá sem tíndu lífi þann 16. janúar 1995. Kastljósið hefur verið talsvert á sveitarfélaginu vegna vinnu rannsóknarnefndar Alþingis, sem lauk störfum í árslok. Þrátt fyrir ósk einstaklinga um gögn hefur enginn komið að rýna þau.

Vikan 19. – 23. janúar

Landhelgisgæslan hafði samband og lét vita af því að varðskipið Þór yrði í birtingu við Strandseljavík, innanvert við Ögurhólma, að sækja búrhvalinn. Aðgerðin tókst með ágætum og var hvalurinn dreginn út úr Ísafjarðardjúpi þann dag, út í hafstrauma þannig að hann fari frá landi.

 

Varðskipið Þór – búið að setja taug í búrhvalinn og hann dreginn úr fjöru.

Fundur með Atvinnuvegaráðuneytinu varðandi frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem kynntar voru helstu breytingar með frumvarpinu. Frumvarp til laga um lagareldi eru ný heildarlög þar sem settar eru reglur um allt sjávareldi við landið. Áform um að leggja niður Fiskeldissjóð en veita í stað þess þeim sömu fjármunum beint til sveitarfélaga sem í hlut eiga til uppbyggingar innviða tengdum sjókvíaeldi. Í frumvarpinu er að finna breytingar á gjaldsetningu af greinni og ákveðinni lagaumgjörð um eftirlit og aföll. Sveitarstjóri skilaði umsögn í samráðsgátt þar sem helstu breytingar eru jákvæðar heilt yfir með einstaka athugasemdum.

Miðvikudags verkfundur með aðilum sem tengjast uppbyggingu við Langeyri. Farið yfir stöðuna þar sem verktakar eru byrjaðir á lengingu landfyllingar til suðurs. Þungatakmarkanir taka gildi kl. 12 fimmtudaginn 22. janúar og því ekki fært á meðan að flytja grjót og efni af Súðavíkurhlíð.  

Vikan 26. – 30. janúar

Fundur með Sambandi íslenskra sveitarfélaga, heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðis-ráðuneytinu og fleiri hagaðilum vegna átaks í málefnum tengdum greiningu og úrvinnslu ADHD hjá skólabörnum og úrræðum því tengdu. Uppleggið er tilraunaátak á Vestfjörðum í þessum málaflokki, sem er partur af stærra verkefni. Ágætis fundur þar sem farið var yfir stöðuna eins og hún er í dag og væntingar um úrbætur og leiðir. Áhersla er lögð á að Súðavíkurhreppur komi á fót samstarfi við Ísafjarðarbæ um skólaskrifstofu sem fari með málaflokkinn.  

Fundur vegna Gamla Pósthússins. Farið yfir aðgengismál og úrbætur í bílastæðamálum. Ákveðið að skoða hvort samvinna gæti verið með eigendum Gamla Pósthússins og Súðavíkurhreppi í að laga aðgengismál s.s. með umsókn um styrk í verkefnið úr Jöfnunarsjóði. Þá var ákveðið að eigendur Gamla Pósthússins færu í það að ræða frekar við Vegagerðina um bílastæðamál þar sem lokað var fyrir þau bílastæði sem voru við Gamla Pósthúsið með steyptum kanti við Aðalgötu. Hugsanlega lausn í sjónmáli þannig að allir getið við unað.

Köfunarþjónustan hafði samband með tölvupósti varðandi næstu vinnulotu við norðurgarð Súðavíkurhafnar. Hafa boðað komu sína þann 4. febrúar nk. og því þarf að skoða hvort ekki sé unnt að útvega gistipláss og hvort það stangist á við umferð við höfnina.

Skipulags-/bygginga: Aðkallandi að halda fund í skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngu-nefnd þar sem ekki hefur verið haldinn fundur síðan 10. desember, fund sem var stuttur og farið yfir aðeins hluta þeirra mála sem þarf að taka fyrir. Fyrir liggur að teikna upp girðingar fyrir lokun hafnarsvæðis við Langeyri og hlið fyrir innakstur og lagnir vegna vatns og fráveitu.

Fundur með skólastjóra vegna auglýsingar stöðu skólastjóra Súðavíkurskóla og stöðu kennara við skólann. Búið að útbúa auglýsingu sem verður birt eftir að búið er að fara yfir stöðuna og ákvarða starfslok skólastjóra og viðskilnað. Sveitarstjórn ákvað á síðasta fundi sveitarstjórnar að ákvörðun yrði á dagskrá næsta fundar sveitarstjórnar þann 13. febrúar.   

Minnisblað barst í tp. frá Vegagerðinni vegna tillögu að frágangi við Gamla Pósthúsið. Áralangar deilur um bílastæði við Aðalgötu þar sem útakstur hefur verið takmarkaður vegna umferðar. Fram hefur komið að sú aðgerð var gerð í óþökk þáverandi eiganda og án alls samráðs. Minnisblað yrði lagt fyrir næsta fund skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefndar. Einhver misskilningur var milli eigenda og Vegagerðarinnar svo upphaflegt plan var endurskoðað.

Verður væntanlega lagt fyrir Vegagerðina að samþykkja þær breytingar sem fela í sér lokun stæðis fyrir framan húsið. Málinu lauk svo með samkomulagi milli Vegagerðarinnar og Gamla Pósthússins, en Súðavíkurhreppur færi í sinn hlut að tryggja aðkomu að Ömmu Habbý með vegi frá Njarðarbraut sem þarf að laga.

Fundur stjórnar Vestfjarðastofu. Talsvert efni lá fyrir fundinn til afgreiðslu og kynningar. Farið yfir ýmislegt svo sem umsagnarmál og samgönguáætlun ofl., en búið er að senda inn umsögn af hendi Vestfjarðastofu um áherslumál fyrir Vestfirði og beiðni um flýtingu framkvæmda ofl.  

Vigur:Erindi barst frá lögmanni vegna málefna Vigur. Sveitarstjóri staðfesti móttöku erindis en hafði í framhaldinu samband við lögmanninn og bauð honum að draga þetta mál til baka öllum til heilla. Erindið verður lagt fyrir næsta fund sveitarstjórnar til skoðunar. 

Vikan 2. – 6. Febrúar

Verkfundur vegna Langeyrarverkefnis og heimsókn frá Ískalk og Marigot: Halldór Halldórsson og Michael Ryan mættu í kaffistofu Tígurs og í framhaldinu fóru þeir í vettvangsferð niður á landfyllingu. Verkinu þar miðar vel og er á áætlun. Lenging garðsins til suðurs gengur vel og annað er klárt fyrir verktakann í vor að hefja byggingu. Ágætis fundur með þeim í Álftaveri í framhaldinu þar sem farið var yfir þau helstu verkefni sem verið er að leysa þessa dagana. Sveitarstjóri og umsjónarmaður fasteigna lögðu til að halda garðinum óbreyttum við nyrðri endann á land-fyllingunni þar sem lítið ynnist með dýrum breytingum. Allir sem voru viðstaddir fundinn og svo verkfund í framhaldinu voru sammála um að ening þörf væri fyrir að breikka innkomuna. Þrátt fyrir að þrengra yrði um veginn mætti spara talsvert á því.  

Stjórnarfundir í Fasteignafélaginu Langeyri ehf. og Grundarstræti ehf. Sveitarstjóri boðaði til fundar í báðum félögum, en fáir fundir hafa verið og engir undanfarin misseri. Staðfest stjórn og umræður um framtíð félaganna. Bæði félög þurfa að standa undir rekstri og viðhaldi eigna og því ákveðið að hækka leigu fyrir fasteignina Langeyrarveg 5-7 um 30%, en engar hækkanir hafa farið fram undanfarin ár. Leiguverð hefur verið mjög lágt fyrir iðnaðarbilin og alveg úr takti við þá þróun sem átt hefur sér stað með eftirspurn.

Fundur í skipulags-, bygginga-, umhverfis- og samgöngunefnd. Fimmtudaginn 5. febrúar var haldinn 50. fundur nefndarinnar á kjörtímabilinu. Farið var yfir þau framkæmdamál sem liggja fyrir þessa dagana. Undir einum liðnum var skoðaður möguleik uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í Súðavík. Fyrir liggur að Ískalk áformar að byggja 10-12 íbúðir fyrir starfsfólk við kalkþörunga-verksmiðjuna og Súðavíkurhreppur áformar að halda í við íbúaþróun og eftirspurn með hugsanlega 4-6 íbúðir í fjölbýli. Skoðaðir verða ýmsir kostir varðandi húsagerð og verð fyrir íbúðir í blönduðu fjölbýli.

Njarðarbraut 20: Vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Njarðarbraut, mön neðan við Aðalgötu til að blinda geymslusvæði undir fiskeldisbúnað, hefur þurft að leggjast yfir lóðarleigusamninga og önnur þau gögn sem staðfesta lóðarmörk. Til er eignaskiptayfirlýsing frá því 16. febrúar 2004 fyrir þau húsnúmer sem eru í Njarðarbraut 14-20 sem sýnir útlit lóðar. Annars vegar er mynd af kort.is sem sýnir umfang miðað við núverandi notkun og hinsvegar uppdrátt. Sjá meðfylgjandi myndir.

Ekki er sami skilningur uppi milli aðila varðandi lóðarmörkin og hefur því þurft að fara yfir málin, bæði skjöl og uppmælingu af svæðinu miðað við það sem liggur fyrir.

 

Vikan 9. – 13. febrúar:

Verkfundur með Vegagerðinni og Tígur þar sem farið var yfir verkstöðu og uppmælt efni sem lagt hefur verið út og áætlun um það sem eftir er. Komin er nokkuð góð mynd á það sem framundan er og næstu verkefni. Sveitarstjóri vinnur að því að klára vottun fyrir höfnina með öryggissvæði fyrir siglingavernd, koma niður á blað lagnaleiðum fyrir vatn, rafmagn og fráveitu, skipuleggja malbikun vegar að landfyllingu og öðru sem tilheyrir. Næstu mánuðir verða nokkuð kostnaðar-samir fyrir sveitarfélagið þar sem frágangur allur mun leggjast meira og minna á.

Svæðisráð vegna svæðisskipulags Vestfjarðakom saman miðvikudaginn 11. febrúar til að fara yfir tillögu að svæðisskipulagi til auglýsingar. Nokkuð endanlegt útlit er komið á skipulagið sem fer nú í auglýsingu til Skipulagsstofnunar. Kynningarfundir verða í framhaldinu fyrir sveitarfélögin og íbúa, á Patreksfirði, Hólmavík og Ísafirði dagana 24. – 26. febrúar, en fundurinn þann 25. verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Prentað eintak af töllögu liggur á borðinu fyrir fundinn.

Slökkvibifreið fyrir Súðavíkurhrepp:Slökkvibifreiðin er tilbúinn í Reykjavík og hægt að taka við honum líklega núna fyrir helgina. Umsjónarmaður fasteigna mun fara suður að sækja hann og hefur hann verið útbúinn með því helsta sem þarf. Til athugunar er fyrir þennan hóp, sveitastjórn, að selja eldri bílinn. Bíllinn er í góðu standi en þarfnast lagfæringar að einhverju leyti (dælur). Kaupverð var 5,5 mkr. fyrir rétt um 4 árum (afsal í janúar 2022) og fengum við hann á kjörum sem gilda jafnan milli slökkviliða landsins. Bætt var við hann Holmatro vökvaklippum fyrir bílflök, virði um 4-5 mkr. og fengust þær afhentar með og var endanlegt kaupverð hækkað. Við munum nota úr honum einhvern búnað sem mun nýtast áfram hér. Bílslys á Súðavíkurhlíð sýndi fram á að nauðsynlegt er að hafa bílaklippur í sveitarfélaginu og þá helst rafmagnsklippur, enda eru þær mun meðfærilegri þegar þarf að fara út fyrir veg.

Varðandi Fiskeldissjóð: Nú liggur fyrir að sækja þarf um í Fiskeldissjóð fyrir árið 2026 og líkur umsóknarfresti þann 17. febrúar. Það liggur fyrir að nýjar áherslur hafa verið kynntar og verefnum fækkað en hærri framlög geti fengist í einstaka verkefni. Nú þarf að skoða hvaða verkefni geta verið þess umkomin að falla að umsókn í sjóðinn.

Umhverfis- og orkustofnun: Súðavíkurhreppur fékk tölvupóst með ábendingu frá UOS um að ekki væri boðið upp á flokkun úrgangs í Djúpi með áréttan á lagaskyldu þess eðlis. Erindi hefur verið svarað með áformum um að bæta úr og ósk um ábendingar um hvort gera megi betur.

Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri