Samþykkt svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050

Öll sveitarfélög á Vestfjörðum sem standa að gerð svæðisskipulagsins hafa samþykkt tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050. 

Aðdragandi og ferli hafa verið langt, en verkefnið hófst formlega í september 2023. Líkt og fram kemur í meðfylgjandi frétt Vestfjarðastofu stóðst verkið tímaáætlun að mestu leyti og afraksturinn er eitthvað sem við getum verið stolt af. Framundan er að vinna eftir skipulaginu og heim- og staðfæra í skipulagi í heimabyggð. 

Hér er tengill á frétt um samþykkt skipulagsins á síðu Vestfjarðastofu ásamt frekari upplýsingum og tenglum.