Kæru íbúar Súðavíkurhrepps
Gengið hefur verið frá ráðningu í starf sveitarstjóra Súðavíkurhrepps. Elísabet Margrét Jónasdóttir var ráðin til starfa.
Elísabet býr yfir víðtækri reynslu á sviði rekstrar og fjármálastjórnunar og hefur á undanförnum árum gegnt starfi fjármála- og skrifstofustjóra hjá Fiskvinnslunni Íslandssögu hf.
Jafnframt hefur hún sinnt fjármálastjórnun fyrir Norðureyri ehf. og Vestfisk ehf. síðastliðin tíu ár. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af áætlanagerð, rekstrarstýringu og mannauðsstjórnun, auk þess að hafa komið að innleiðingu upplýsingakerfa og umfangsmiklum umbótaverkefnum. Elísabet hefur lagt stund á viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og hefur lokið Mini MBA námi með áherslu á fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun.
Elísabet hefur einnig öðlast góða innsýn í opinbera stjórnsýslu, meðal annars í gegnum þátttöku sína í sveitarstjórnarstörfum Ísafjarðarbæjar.
Súðavíkurhreppur bindur miklar vonir við ráðningu Elísabetar og býður hana hjartanlega velkomna til starfa.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.