Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Piff var haldin með pomp og pragt á Ísafirði dagana 8. - 11. október. Hátíðin er árviss viðburður og hún teygjir anga sína til Þingeyrar og til Súðavíkur. Á föstudagskvöldið var kvikmyndin RIde to faith sýnd og leikstjóri og aðalleikari myndarinnar, Herman Weiskopf mætti og sat fyrir svörum ásam tónlistarkonunni Lionessu Soul ( Vanessa Weiskoph) sem kemur fram á nokkrum stöðum í myndinni. Á laugardagskvöldinu var komið að fimm stuttmyndum og til okkar mættu tveir leikstjórar, Cezary Orlowsky - Can you see - og Andreas Sheittanis - Nikos long walk og leikkonan Sigrid ten Napel sem leikur aukahlutverk í stuttmyndinni Beyond silence. Þetta er sannarlega mikill menningarviðburður sem boðið er upp á hér og þökkum við aðstandendum Piff og þá sérstaklega Fjölni Bladurssyni fyrir. Á sunnudagskvöldinu var síðan komið að verðlaunaafhendingu hátíðarinnar á Dokkunni og það má til gamans geta að Sigrid ten Napel hlaut verðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki í stuttmynd og aðaleikkonan fékk einnig verðlaun. Herman Weiskoph vinur okkar hlaut heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Við þökkum Agnari, Söru og Úlfari kærlega fyrir hjálpina við að gera bókasafnið klárt fyrir sýningarnar og hjálp við þær. Að lokinni afhendingu verðlauna spiluðu Siggi Björns, Stefán Freyr, Gummi Hjalta og sonur hans Sigga, Magnús Björnsson nokkur lög við mikla hrifningu viðstaddra. Í lokin tók svo Lionessa Soul lagið.
ljósmyndir og frétt Th. Haukur
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.