Opnir kynningarfundir - Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050

Tillaga að svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-20250 er aðgengileg í skipulagsgátt í umsagnarferli fram til 7. apríl 2026. Öll sveitarfélög á Vestfjörðum standa að skipulaginu og hafa samþykkt tillögu að svæðisskipulagi fyrir Vestfirði. Með umsagnarferlinu er opið fyrir athugasemdir og tillögur að breytingum eða ábendingum í umsagnarferli fram að 7. apríl. Að því loknu mun svæðisskipulagsnefnf fara yfir innsendar umsagnir eða ábendingar fyrir lokatillögu sem svo verður lögð fram sem svæðisskipulag fyrir Vetfirði. Að svæðisskipulaginu standa átta sveitarfélög á Vestfjörðum; Reykhólahrepur, Vesturbyggð, Strandabyggð, Árnesherppur, Kaldrananeshreppur, Súðavíkurhreppur, Ísafjarðarbær og Bolungarvíkurkaupstaður. 

Ferlið að baki gerð svæðisskipulagstillögu spannar nú á fjórða ár frá því síðla árs 2023. Á þeim tíma hefur verið opið samráðsferli og hefur svæðisskipulagsnefnd tekið á móti og farið yfir fjölda umsagna og ábendinga sem hafa haft áhrif á og mótað skipulagstillöguna. Íbúar Súðavíkurhrepps og aðrir sem skipulagið varðar eru hvattir til þess að nýta tækifærið til þess að hlýða á kynningu um svæðisskipulagstillöguna sem haldnir verða á þremur stöðum á Vestfjörðum. 

Kynningarfundirnir eru opnir og hefjast kl. 17:00 dagana 24. - 26. febrúar 2026 á Hólmavík, Patreksfirði og Ísafirði sbr. meðfylgjandi auglýsingu: