Melrakki gisting ehf. er með heimild til að reisa sex smáhýsi og þjónustuhús við norðurenda Holtagötu í Eyrardal í Súðavík. Græjað og gert hefur hafið jarðvinnuframkvæmdir á lóðinni og AV pípulagnir munu tengja vatn og frárennsli. Orkubú Vestfjarða mun tengja rafmagn. Húsin sjálf koma frá Akureyri í lok mars. Reisum ehf. byggir húsin og flytur þau til Súðavíkur. Markmiðið er, að sögn eigenda, að byrja með því að setja upp tvö hús í sumar og bjóða upp á gistingu og morgunverð fyrir ferðamenn og vegfarendur. Pantanir munu fara fram á booking.com.
frétt og ljósmyndir Th. Haukur
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.