Matráður óskast við leik- og grunnskóla
Súðavíkurhreppur auglýsir starf matráðs við Súðavíkurskóla.
Leitað er að ábyrgum, jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi til að sjá um daglegan rekstur mötuneytis leik- og grunnskólans.
Í mötuneytinu er að jafnaði eldað fyrir um 40 einstaklinga á dag bæði leik- og grunnskólabörn og starfsfólk. Fjöldi matargesta getur verið breytilegur.
Við leggjum áherslu á hollan, fjölbreyttan og næringarríkan heimilismat þar sem góð hráefni og vönduð matargerð eru í fyrirrúmi.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Um er að ræða 75% starfshlutfall.
Starfið er laust frá og með 1. nóv 2026. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 28. okt.2026.
Umsóknir berist á netfangið sudavik@sudavik.is
Helstu verkefni:
Matreiðsla og framreiðsla máltíða fyrir börn og starfsfólk.
Skipulagning matseðla og máltíða með áherslu á hollustu og fjölbreytni.
Innkaup og utanumhald hráefna og birgða.
Uppvask, frágangur og þrif eldhúss og mötuneytissalar.
Ábyrgð á hreinlæti og öruggri meðhöndlun matvæla.
Að gæta að sérþörfum barna vegna fæðuofnæmis og óþols.
Önnur tilfallandi verkefni í starfsemi skólans eftir þörfum
Hæfniskröfur:
Reynsla af matreiðslu er æskileg.
Áhugi á hollri næringu og matargerð fyrir börn.
Sjálfstæð, skipulögð og ábyrg vinnubrögð.
Rík hreinlætisvitund og snyrtimennska.
Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
Íslenskukunnátta er kostur
Rík áhersla er lögð á matvælaöryggi og vönduð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að hafa lokið eða vera tilbúinn að ljúka viðeigandi fræðslu í matvælaöryggi og hreinlæti við upphaf starfs.
Við bjóðum:
Sjálfstætt og fjölbreytt starf ásamt notalegu starfsumhverfi í litlu skólasamfélagi.
Fræðsla og námskeið í matvælaöryggi á kostnað sveitarfélagsins.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.