Litla skiptibókasafnið var sett á laggirnar af Súðvíkinginum Dagbjörtu Hjaltadóttur 2015. Litla skiptibókasafnið var sett upp í gamla símaklefanum í gamla þorpinu í Súðavík. Henni fannst upplagt að losa sig þannig við kiljurnar sínar og gefa þeim nýtt líf og eins og Dagga segir, þá er aldrei nógu mikið lesið. Hún tekur aðeins við kiljum því ál-súlurnar í símaklefanum bera bara léttar bækur. Fólk er skilvíst og ef það tekur bók án þess að setja aðra í staðinn þá kemur það oft með fleiri bækur næst. Þarna er að finna bækur á fjölda tungumála og finna má allt frá sjálfshjálparbókum, bókum um fjöldamorðingja til heimsbókmennta. Safnið nota bæði ferðamenn og heimafólk. Í lok sumars eru skiltin skrúfuð niður og bækur setttar í geymslu.
frétt Dagbjört Hjaltadóttir og Th.Haukur - ljósmyndir Dagbjört H.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.