Ágætu íbúar Súðavíkurhrepps og gestir.
Kómediuleikhúsið ásamt Súðavíkurhreppi og Melrakkasetrinu bjóða upp á leiksýninguna Ariasaman sunnudaginn 14. september kl.17.00. Leiksýningin fer fram í húsnæði Melrakkasetursins í Eyrardal. Aðgangur að leiksýningu er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Eftir sýninguna býður Melrakkasetur upp á plokkfiskur á góðu verði, 1.900 kr.
Það er hægt að panta matinn á íbúavefnum á facebook þar sem sýningin er auglýst með athugsemd eða einkaskilaboðum.
Sögulegt leikverk um blóðug myrkraverk fyrir vestan.
Ariasman er áhrifa- og átakamikið leikverk um eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar, Baskavígin. Að haustlagi 1615 var 31 baskneskur skipsbrotsmaður veginn af vestfirskum bændum. Ariasman er leikgerð sem er byggð á samnefndri sögulegri skáldsögu Tapio Koivukari, um Baskavígin sem eru í raun fyrstu og vonandi einu fjöldamorð Íslandssögunnar. Þessir hrottalegu atburðir gerðust fyrir vestan haustið 1615 þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn á miskunarlausan hátt af vestfirskum bændum undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri, en Baskarnir þekktu hann undir nafninu Ariasman.
Sýningartími: 80 mín. með 15 mín. hléi
Höfundur Tapio Koivukari/ Leikari Elfar Logi Hannesson / Ljós Sigurvald Ívar Helgason / Búningahönnuður Þ. Sunnefa Elfarsdóttir / Tónlist Björn Thoroddsen / Leikmynd og leikstjórn Marsibil G. Kristjánsdóttir