Jólamessa 26. desember 2022

Þann 26. desember s.l. var jólamessa haldin í Súðavíkurkirkju.  Messan var vel sótt og var síðasta messa sóknarprestsins okkar, sr. Ástu Ingibjargar Pétursdóttur.  Ásta er að flytja til Reykjavíkur og mun þjóna í Laugardalsprestakalli.  Jón Gunnar Biering lék á gítar í messunni af sinni alkunnu snilld.  Við þökkum sr. Ástu fyrir hennar góðu störf og vináttu til margra ára.

ljósmyndir