Vorhreinsun verður í Súðavík laugadaginn 24. maí. Ef veður leyfir verðum við með vorhreinsun bæði í gamla og nýja hluta Súðavíkur. Stefnt að því að byrja í nýja þorpinu um kl. 10:00 og vinna okkur út í gamla þorpið og enda á grilli og léttum veitingum við Gunnubúð á tjaldsvæðinu. Súðavíkurhreppur leggur til sorppoka og heldur utan um hreinsunarstarfið.
Verður nánar auglýst á föstudaginn og tekið mið af veðurspá.
Vakin er athygli á því að skrifstofa Súðavíkurhrepps verður lokuð föstudaginn 23. maí, en starfsfólk verður annað hvort á fundi eða samfélagsverkefnum í samkomuhúsinu okkar í gamla bænum.
F.h. Súðavíkurhrepps
Bragi Þór Thoroddsen - sveitarstjóri
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.