Gönguhátíð í Súðavík um verslunarmannahelgina 2023

Gönguhátíð í Súðavík um verslunarmannahelgina 2023😊

Gönguhátíðin í Súðavík verður haldin í níunda skiptið um verslunarmannahelgina í sumar. Endilega takið frá helgina 4.-7.ágúst 2023.

SÚÐAVÍK – GÖNGUHÁTÍÐ 4.-7.ÁGÚST 2023😊

Að þessu sinni setjum við tvær göngur fyrir hvern dag ef hætta þarf við aðra þeirra vegna óviðráðanlegra orsaka (eins og þoku) 

Fimmtudagur 3.ágúst – hittingur á Melrakkasetrinu hefst kl.20:00, hægt er að panta mat á setrinu í síma 456-4922

Klofningur eða Þorfinnur (Flateyri)

Föstudagur 4.ágúst

Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson

Brottför: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík, komið við á bónusplaninu ef hægt er að sameinast í bíla

Áætlaður göngutími  6 – 8 tímar, 2-3 skór

 

Galtarviti eða Vigur

Brenna fyrir neðan Súðavíkurskóla kl. 20:30

Laugardagur 5.ágúst

Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson

Brottför: vegna Galtarvita: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík, komið við á bónusplaninu ef hægt er að sameinast í bíla farið út í Skálavík, hægt að hittast þar líka

Áætlaður göngutími  5 -6 klukkustundir, 2 -3 skór.

Brottför vegna Vigur er kl. 9:00 frá búðinni í Súðavik og þaðan farið niður á bryggju og siglt inn í Vigur, gengið um eyjuna og áætlað að kaupa kaffi og meðlæti á staðnum

Opið grill í Raggagarði – allir mæta með grillkjöt og meðlæti og eigin drykki frá kl 18:00 – 20:00

Sveitarball/diskó í Samkomuhúsinu í Súðavík 20:30 – 24:00. Allir mæta með eigin drykki

 

Vigur eða Kofri

Sunnudagur 6.ágúst

Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson

Brottför: vegna Kofra: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík.

Áætlaður göngutími  3 -5 klukkustundir, 2 -3 skór.

Brottför vegna Vigur er kl. 9:00 frá búðinni í Súðavik og þaðan farið niður á bryggju og siglt inn í Vigur, gengið um eyjuna og áætlað að kaupa kaffi og meðlæti á staðnum

Seljalandsfoss eða Valagil

Mánudagur 7.ágúst

Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir, Ólafur Elíasson og Sigurður Kjartansson

Brottför: kl 9:00 frá búðinni í Súðavík, sameinast í bíla og keyrt inn í Álftafjörð.

Áætlaður göngutími 1 – 2 klukkutímar, 1 skór 

Vakin er athygli á því að skráning í göngurnar þarf að liggja fyrir í síðasta lagi fimmtudaginn 3.ágúst. Morgunmatur verður alla daga í Kaupfélaginu (verslun) – er innifalinn ef keyptur er pakki með öllum ferðunum. Upplýsingar um göngurnar og farastjórn er á Facebook síðu gönguhátíðar.

Verð í göngur á Gönguhátíðinni eru eftirfarandi:

Ef keyptur er aðgangur í allar göngurnar er verðið kr. 15.000.-  og er þá innifalið morgunmatur í búðinni alla göngudagana, brenna og ball í Samkomuhúsinu Súðavík.

Hægt er að kaupa stakar göngur. Lengri göngur 5000.- og styttri göngur 3000.-kr

Þátttakendur mæta í göngur á eigin ábyrgð og er bent á að hafa ferða- og slysatryggingar í lagi. Almennir fyrirvarar gilda um göngur út frá veðri og aðstæðum. Ef fella þarf niður göngur vegna veðurs eða aðstæðna verður stefnt á að hafa aðrar göngur í staðinn ef hægt er.

Fararstjórar: Anna Lind Ragnarsdóttir s.893-4985, Ólafur Elíasson s.821-1152 og Sigurður Kjartansson s.897-4542.

Einnig veita upplýsingar: Bragi Þór Thoroddsen s. 868-9272

Hægt er að greiða fyrir göngurnar inn á reikning Göngufélags Súðavíkur. Senda kvittun á: annalind@sudavikurskoli.is

Reiknisnúmer: 0154-05-420900, kt:440204-4190