Gamla Pósthúsið opnar fyrir sumarið

Gamla Pósthúsið í Súðavík opnaði fyrir gesti og gangandi í dag 12. júní með pomp og pragt.  Fyrstu gestirnir komu um hálf ellefu í morgun og var vel tekið á móti þeim með rjúkandi kaffi og meðlæti.  Gamla Pósthúsið verður opið alla daga í sumar frá ellefu til tíu að kvöldi og jafnvel lengur ef svo ber undir.  Þau ætla að meðal annars að bjóða upp á sælkera fiskisúpu og kjúklingaborgara svo eitthvað sé nefnt en auk þess er kaffi og meðlæti og vínveitingar.  Nú er hægt að setjast út á nýsmíðan pall og njóta kyrrðarinnar í góðum félagskap.  Á undanförnum gögum hefur verið hellulagt fyrir framan og borð sett þar, þar sem gestir geta einnig notið útiverunnar.  Græjað og Gert sá um framkvæmdirnar og Hassa Alhmoud lagði hellurnar.  

ljósmyndir og frétt Th.Haukur