Fyrsta skóflustungan að Kalkþörungaverksmiðjunni á Langeyri í Súðavík var tekin í dag og við það tilefni var lagður hornsteinn. Viðstaddir voru ásamt Súðvíkingum og gestum þau Michael Ryan Iskalk board, Francis OSullivan CFO Marigot, David Butler verkfræðingur Marigot,Halldór Halldórsson CEO Ískalk, Tryggvi B. Bjarnason site manager Kalkþörungaverksmiðjunnar á Bíldudal, Péter Varjas TD Lakógép, Vikor Újavári PM Lakógép, Péter Hustyava SM Lakógép, Barnabás Róth PC Lakógép, Nikolett Bertalan PM Lakógép, Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri Súðavíkurhrepps ogKjartan Elíasson frá Vegagerðinni. Að athöfninni lokinni var gestum boðið að eiga samveru og þiggja veitingar í sal Súðavíkurskóla. Nú hefst bygging Kalkþörungaverskmiðjunnar og annara bygginga á Langeyri og er búist við að hluti framleiðsluferlis fari í gang á næsta ári.
Opið kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00 virka daga.