Fundur vegna framkvæmda í Samkomuhúsinu

Þann 3. maí s.l. var haldinn kynningarfundur vegna framkvæmda í Samkomuhúsinu í Súðavík.  Garðar Sigurgeirsson í Súðavík kom fyrir hönd Vestfirska Verktaka og fór yfir framkvæmdir þær sem búnar eru nú þegar og fór yfir teikningar Seistudio arkitekta. og þær framkvæmdir sem framundan eru.  Fjörugar umræður spunnust á þessum góða fundi og almenn ánægja með framvindu breytinganna.

ljósmyndir og frétt Th.Haukur