Fundur vegna framkvæmda í Samkomuhúsi

Kæru íbúar,

Á sunnudaginn kemur, 3. maí 2026 kl. 13:00, verður kynning á teikningum af Samkomuhúsinu í Súðavík og hugmyndir að næstu skrefum. Vestfirskir Verktakar hafa annast það verk og unnið að þeim endurbótm sem óhjákvæmilegt var að fara í. Nú eru það næstu skref. Það verður því opið hús og kynning á þeim teikningum sem liggja fyrir og gefst tækifæri að ræða hugmyndirnar og koma með athugasemdir. Áætlað að hafa opið milli kl. 13 og 15 þann dag í Álftaveri - Grundarstræti 1.