Framkvæmdir Bláma í Súðavík

Fyrir nokkru hafði Blámi samband við Súðavíkurhrepp vegna prófunar á nýrri tækni til húshitunar, svokölluðum segulhitara, sem nýtir fallvatn til að snúa seglum og framleiða varma. Þar sem innviðir í Súðavík þóttu sérstaklega ákjósanlegir var ákveðið að hefja tilraunaverkefni á staðnum. Inntak hefur verið lagað upp í gamla vatnsbóli, þar sem vatn er tekið úr eldri, ónotaðri lögn sem hefur verið framlengd niður í flæðarmál fyrir neðan kirkjuna. Þetta vatnsfall, í samspili við varmadælu, verður nýtt til að hita upp heitan pott sem komið hefur verið fyrir á svæðinu. Jafnframt hefur verið reistur skúr sem hýsir allan búnað sem tengist hitaframleiðslunni. Allar lagnir til og frá pottinum eru fullfrágengnar og því einungis eftir að tengja saman kerfin inni í skúrnum. Að því loknu geta kátir Súðvíkingar – og aðrir gestir – notið sjósunds og iljað sér í heitu vatni að því loknu.

frétt Tinna Rún Snorradóttir - ljósmyndir Th.Haukur