Framkvæmdir á Langeyri

Verktakafyrirtækið Tígur er að vinna á Langeyri við að stækka fyllingu fyrir lón þar sem kalkinu  verður dælt uppí.  Efnistaka er eins og áður sótt á Súðavíkurhlíðina og keyrð á Langeyri.  Verkið gengur mjög vel í blíðunni sem verið hefur undanfarnar vikur.

ljósmyndir og frétt Th.Haukur