Auglýsing um kjörfund í Súðavíkurhreppi vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst 2026

Auglýsing um kjörfund vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu 29.ágúst 2026

Kosið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst 2026. Tvær kjördeildir verða í Súðavíkurhreppi og eru kjörstaðir í Súðavíkurskóla og Heydal eftir kjörskrá.

Kjörfundir verða sem hér segir:

Súðavíkurskóli frá kl.10:00-18:00.

Heydalur frá kl. 12:00-16:00.

Framvísa skal sannreynanlegum skilríkjum á kjörstað s.s. vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírsteini.

Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu Súðavíkurhrepps. Kjörskrá mun liggja frammi á kjörstöðum á kjördegi.

Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps

Guðrún I Halldórsdóttir

Herdís Mjöll Jónasdóttir

Snorri G Bergsson