Atvinna

Félagsleg liðveisla

 

Súðavíkurhreppur óskar eftir starfsmanni í félagslega liðveislu. Um er að ræða starf í tímavinnu þar sem vinnutími er breytilegur að degi til, á kvöldin og um helgar. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2022.

 

Meginverkefni

  • Veita félagslegan stuðning
  • Efla fólk til sjálfstæðis í félagslegum samskiptum

 

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfinu
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Rík þjónustulund
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta (annað hvort fullnægjandi)
  • Bílpróf og bíll til afnota kostur

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur / VerkVest).

 

Umsóknir skulu sendar til Jóhönnu Maggý Kristjánssdóttur, forstöðumanns stuðningsþjónustu á netfangið  johannakr@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna, í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst.

 

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.