Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Piff

Þann 8.-11. október verður alþjóðlega kvikmyndahátíðin Piff haldin á Ísafirði. Þar kennir margra grasa í kvikmyndum og stuttmyndum. Að venju og í sjötta skiptið verða sýningar í Bókasafninu í Súðavík dagana 9. og 10. október klukkan átta. Fyrra kvöldið verða fimm stuttmyndir sýndar og svo verður kvikmynd sýnd á laugardagskvöldinu. Hér er hlekkur á youtube um hana - https://www.youtube.com/watch?v=nJpN-fdEN4U
Við hvetjum Súðvíkinga að fjölmenna á þennan einstaka menningarviðburð.