Sorphirðudagatal og opnunartími sorpmóttöku
Sorpmóttakan við Njarðarbraut í Súðavík er opin á þriðjudögum frá kl. 15:00 til 18:00.
Gjaldskrá og fyrirkomulag:
Hámarks farmstærð:
er 2 m3 fyrir alla viðskiptavini.
Opnunartími:
Þriðjudaga frá kl. 15:00 til 18:00 eða eftir nánari samkomulagi við starfsmann áhaldahúss.
Einnig er opið á laugardögum milli kl. 11:00 til 13:00 frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.
Hvað ber að greiða:
Atvinnurekstur greiðir fyrir allan úrgang að undanskildum málmum/járni og þeim úrgangsflokkum sem bera úrvinnslugjald, s.s. hjólbarða, bylgjupappa og plastumbúðir.
Almenningur greiðir ekki fyrir málma/járn eða úrgang sem getur talist falla til við daglegan heimilisrekstur en greiðir gjald vegna:
úrgangs frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis og lóða.
úrgangs frá bifreiðaviðgerðum.
úrgangs vegna húsdýrahalds.
Móttökugjöld fyrir einstaka farma:
Móttökugjöld verða að lágmarki kr. 500 fyrir allt að 0,25 m3 og kr. 500 fyrir hvern 0,25 m3 umfram það.
Innheimta gjalda:
Boðið er upp á að gjöld vegna sorpmóttöku verði reiknisfært og innheimt með greiðsluseðli á þriggja mánaða fresti eða staðgreitt með reiðufé við móttöku.
Ofangreint fyrirkomulag er til reynslu í nokkra mánuði og er óskað eftir góðri samvinnu íbúa um verkefnið sem verður í heild sinni endurskoðað teljist þörf á því.
Ef losa þarf rusla á virkum dögum á öðrum tímum virka daga hafið samband við Frosta í síma 863 1019.
Sorphreinsun í ytri byggð Súðavíkur.
Tveimur grenndargámum er komið fyrir í gömlu byggðinni frá 1. maí til lok september ár hvert. Í þá gáma má setja óflokkað sorp sem kemur úr byggðinni. Þeir gámar eru losaðir á tveggja vikna fresti.
Sorphreinsun í innri byggð Súðavíkur
Sjá sorphirðudagatal
Janúar til júní 2011
Júlí til desember 2011



