Samþykkt um stjórn og fundarsköp Súðavíkurhrepps
Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar.
1. gr.
Skipan sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Súðvíkurhrepps er skipuð fimm sveitarstjórnarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnalaga nr. 45/1998.
2. gr.
Starfstímabil.
Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.
3. gr.
Valdsvið.
Sveitarstjórn fer með stjórn Súðavíkurhrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
4. gr.
Verkefni sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.
5. gr.
Verkefni sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
6. gr.
Verkefni sveitarstjórnar.
Meðal verkefna sveitarstjórnar er:
1. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, nefndir og ráð skv. IV. samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
2. Að setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
4. Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og aðra fasta starfsmenn sveitarfélagsins í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.<!--[endif]-->
II. KAFLI
Um fundarsköp sveitarstjórnar.
7. gr.
Fundartími sveitarstjórnar.
Oddviti skal fyrir annan fund nýkjörinnar sveitarstjórnar leggja fram tillögu að áætlun um fundartíma nefndarinnar fyrir næstu 12 mánuði. Reglulegir fundir sveitarstjórnar skulu haldnir samkvæmt áætluninni hljóti hún samþykki sveitarstjórnar.
Endurskoða skal áætlunina á sex mánaða fresti fyrir næsta 12 mánaða tímabil. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Heimilt er að fresta fundi ef fundarmenn komast ekki til fundar vegna ófærðar.
Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati sveitarstjóra og oddvita sveitarfélagsins. Skylt er að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna krefst þess enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
8. gr.
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar.
Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Aldursforseti getur falið sveitarstjóra að boða fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar.
9. gr.
Boðun sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórn ekki gert það.
10. gr.
Boðun sveitarstjórnarfunda.
Íbúum Súðavíkurhrepps skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.
11. gr.
Dagskrá sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:
1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar sveitarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
3. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmanna óskar að tekin verði á dagskrá. Sveitarstjórnarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það á skrifstofu Súðavíkurhrepps skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, fundargagna, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri og oddviti telja nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn. Fundargerð síðasta sveitarstjórnarfundar skal að jafnaði send út eigi síðar en viku eftir fund.
12. gr.
Fundarboðun.
Sveitarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund hafa sent sveitarstjórnarmönnum og fyrstu varamönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum.
13. gr.
Auglýsing funda.
Dagskrá sveitarstjórnafunda skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu í anddyri Álftavers, á skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórn ákveður.
14. gr.
Fundarboðun aukafunda.
Sveitarstjóri skal boða sveitarstjórnarmenn símleiðis til aukafundar í sveitarstjórn a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Sveitarstjórnarmönnum skal kynnt dagskrá fundarins. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara ef aðkallandi mál bíður afgreiðslu, enda sé hann boðaður með dagskrá.
15. gr.
Kosning oddvita og varaoddvita.
Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn setur fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og stýrir honum uns oddviti sveitarstjórnar hefur verið kjörinn.
Oddviti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs í senn nema sveitarstjórn ákveði að kjósa hann til fjögurra ára.
Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sveitarstjórnar sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.
Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti.
Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til félagsmálaráðuneytisins þegar að því loknu.
Sé hvorki oddviti né varaoddviti á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.
16. gr.
Kosning skrifara.
Sveitarstjórn getur kosið skrifara og varaskrifara úr hópi sveitarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram.
Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórn.
17. gr.
Fundarstaður.
Sveitarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.
Sveitarstjórnarfundi skal halda í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.
Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðli málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitarstjórn.
18. gr.
Lögmæti sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarmanna er mættur á fundinn og getur sveitarstjórn enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.
19. gr.
Fundarstjórn.
Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar og hverjir samþykktu, hverjir voru á móti og hverjir sátu hjá.
Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitarstjórnarfundum og er sveitarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitarstjórnarfundum.
20. gr.
Dagskrármál.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað.
Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.
21. gr.
Afgreiðsla mála við tvær umræður.
Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagins, stofnana þess og fyrirtækja.
2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár, sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnalaga.
22. gr.
Fundarsókn: Varamenn.
Sveitarstjórnarmanni er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé sveitarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann í hans stað. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem sveitarstjórn hefur verið kjörin í bundinni kosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.
Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn sveitarstjórnarmaður.
Sveitarstjórn getur heimilað einstaklingi utan sveitarstjórnar að taka til máls á sveitarstjórnarfundi.
23. gr.
Fundarsköp: Vanhæfi.
Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.
Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli sveitarstjórnar á því. Sveitarstjórnamanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni.
Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmaður sé vanhæfur. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.
24. gr.
Fundarsköp: Málfrelsi fundarmanna.
Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar. Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða sveitarstjórnarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala.
25. gr.
Fundarsköp: Takmarkanir á málfrelsi.
Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal sveitarstjórnarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd við fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar til máls við hverja umræðu máls.
Ekki má sveitarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður í sveitarstjórn nema með leyfi oddvita.
26. gr.
Fundarsköp: Vítur á sveitarstjórnarmann.
Beri sveitarstjórnarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust.
Hlýðnist sveitarstjórnarmaður ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.
27. gr.
Fundarsköp: Meðferð tillagna.
Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um, að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verið lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust.
Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
28. gr.
Fundarsköp: Meðferð tillagna.
Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar, ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.
29. gr.
Fundarsköp: Afgreiðsla mála.
Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra.
Þá er sveitarstjórn heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
30. gr.
Atkvæðagreiðsla.
Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur.
Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir.
Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar nema sveitarstjórn samþykki samhljóða annað.
31. gr.
Úrslit atkvæðagreiðslu.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar sem fram fara í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d'Hondts reglu, sbr. 85. og 86. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 45/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.
32. gr.
Fundarritun: Fundargerð.
Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók sveitarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema sveitarstjórn ákveði annað.
Sveitarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
Sveitarstjórnarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvað atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.
Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur.
III. KAFLI
Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
33. gr.
Skyldur sveitarstjórnarmanna: Fundarseta.
Sveitarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins.
Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnar, svo sem oddvitastörf og önnur störf í nefndum á vegum sveitarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.
34. gr.
Skyldur sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er sveitarstjórnarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.
35. gr.
Tillöguréttur.
Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.
Sveitarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
36. gr.
Aðgangur að upplýsingum.
Sveitarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.
Með öll slík erindi skulu sveitarstjórnarmenn snúa sér til sveitarstjóra. Ákvæði þetta takmarkar þó eigi rétt sveitarstjórnarmanna sem tilgreindur er í 1. mgr. þessarar greinar og 30. gr. sveitarstjórnarlaga.
37. gr.
Bókanir.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.
38. gr.
Þagnarskylda.
Sveitarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.
39. gr.
Lausn úr sveitarstjórn.
Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal sveitarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
40. gr.
Þóknun sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn.
Sveitarstjórnarmaður sem þarf að fara um langan veg milli heimilis og fundarstaðar sveitarstjórnar skal auk þess fá greiddan ferðakostnað.
Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1 mgr.
41. gr.
Orlof.
Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarmaður eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.
42. gr.
Skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna gilda einnig um varamenn sem taka sæti í sveitarstjórn.
IV. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
43. gr.
Kosningar í ráð og nefndir.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver sveitarstjórnarmanna óskar þess.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.
44. gr.
Boðun fyrsta fundar nefnda, ráða og stjórna.
Oddviti sveitarstjórnar boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Á þeim fundi skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða sveitarstjórn ákveði annað.
Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.
45. gr.
Skyldur sveitarstjórnarmanna.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
46. gr.
Lokaðir fundir.
Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
47. gr.
Fundarstjórn nefndafunda.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.
48. gr.
Hlutverk og valdsvið nefnda.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar.
49. gr.
Fundargerðabækur.
Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 31. gr.
50. gr.
Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá næsta fundar sveitarstjórnar að afloknum nefndarfundi.
Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar sveitarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir.
Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir sveitarstjórn.
51. gr.
Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Sveitarstjórn fer með hlutverk annarra lögboðinna nefnda sem ekki eru taldar upp hér á eftir:
- 1. Almannavarnanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 8. gr. laga um almannavarnir nr. 94/1962.
- 2. Barnaverndarnefnd. Nefndin er sameiginleg með Ísafjarðarbæ og Bolungarvíkurkaupstað. Súðavíkurhreppur kýs einn aðalmann og einn til vara skv. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
- 3. Búfjáreftirlitsnefnd. Nefndin er sameiginleg með Ísafjarðarbæ og Bolungarvíkurkaupstað. Súðavíkurhreppur kýs einn aðalmann og einn til vara skv. 7. gr. reglugerðar um búfjáreftirlit nr. 743/2002.
- 4. Bókasafnsnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 7. gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997.
- 5. Félagsmálanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, skv. 10. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 og skv. 6. gr. laga um málefni aldraða nr. 125/1999.
- 6. Fræðslu- og tómstundanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og skv. 9. gr. laga um leikskóla nr. 78/1995.
- 7. Hafnarstjórn Súðavíkurhafnar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
- 8. Bygginga- og umhverfisnefnd . Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
- 9. Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í undirkjörstjórnir, jafnmargir og kjördeildir eru.
- 10. Landbúnaðarnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- 11. Skoðunarmenn sveitarsjóðsreikninga. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- 12. Stjórn félagsheimilisins í Súðavík. Tveir aðalmenn og tveir til vara.
- 13. Skólanefnd útibús Tónlistarskóla Ísafjarðar. Tveir aðalmenn og tveir til vara skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
- 14. Fjórðungsþing Vestfjarða. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara á þing fjórðungssambands Vestfirðinga samkvæmt samþykktum samtakanna.
- 15. Samband íslenskra sveitarfélaga. Einn aðalmaður og einn til vara á landsþing samtakanna.
- 16. Stjórn Grundarstrætis ehf. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara.
- 17. Sumarbyggð ehf. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara.
Auk þess fulltrúar í aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarstjórn hefur ákveðið og á aðalfundi samtaka sem sveitarfélagið á aðild að.
52. gr.
Aðrar nefndir.
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.
V. KAFLI
Um framkvæmdastjórn og starfslið hreppsins.
53. gr.
Ráðning sveitarstjóra.
Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af sveitarstjórn.
54. gr.
Hlutverk sveitarstjóra.
Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.
Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki ákveðið annað.
Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til. Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.
Í forföllum sveitarstjóra skal oddviti annast störf hans nema sveitarstjórn ákveði annað.
55. gr.
Starfsmannaráðning.
Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum.
56. gr.
Ráðning fastráðinna starfsmanna.
Sveitarstjórn ræður aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 54. gr. nema á annan veg sé mælt í reglugerð eða reglum sem sveitarstjórn setur.
57. gr.
Ráðning lausráðinna starfsmanna.
Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.
58. gr.
Kjör og skyldur starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.
VI. KAFLI
Um fjármálastjórn Súðavíkurhrepps.
59. gr.
Fjárhagsáætlanir.
Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til félagsmálaráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstafanir fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
Sveitarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.
60. gr.
Um fjárveitingar og útgreiðslur.
Fjárhagsáætlun skv. 59. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórninni.
Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum, lánsfé eða af eigin fé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.
61. gr.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu á sveitarstjórnarfundi, enda hafi breytingatillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í sveitarstjórn með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar.
62. gr.
Þriggja ára áætlun.
Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.
63. gr.
Skil á fjárhagsáætlunum.
Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnarinnar skal senda félagsmálaráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 59. gr. og þriggja ára áætlun skv. 62. gr. Sama á við um fjárhagsáætlanir samkvæmt þessum kafla.
64. gr.
Endurskoðun ársreikninga.
Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.
Sveitarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinagerðir og tillögur endurskoðanda og sko&et



