Sitemap
TextSizeButtonSmall TextSizeButtonMed TextSizeButtonBig
BannerMask
Valmynd2
lifid
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Skrá atburð
lifid
Facebook Skolastarfsemi Skolar dagskra
Utgefid efni HusinIbae Nesvegur 4
Nesvegur 4

Gjaldskrár

Reglur Súðavíkurhrepps varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum

1. kafli

Almennar forsendur

Súðavíkurhreppur stefnir að því að almennt tónlistarnám fari fram í Tónlistardeild Súðavíkurskóla. Undantekning frá þessu er ef nám verður sérhæfðara en boðið er upp á í Tónlistadeild Súðavíkurskóla eða af öðrum orsökum talið hagkvæmt að nám fari fram í tónlistarskóla utan sveitarfélagsins.

Nemendur sem hafa verið nemendur í Tónlistardeild Súðavíkurskóla geta sótt um heimild til tónlistarnáms við annan tónlistaskóla, ef Tónlistardeild Súðavíkurskóla getur ekki séð um kennslu þeirra lengur vegna sérhæfingar námsins.  

 

Afgreiðsla umsókna um tónlistarnám í öðrum tónlistar-/listaskóla en Tónlistardeild Súðavíkurskóla er á vegum fræðslu og tómstundanefndar Súðavíkurhrepps.

 

2. kafli

Almennar reglur

1.    Súðavíkurhreppur mun greiða fyrir nám í tónlistarskóla fyrir nemendur, sem óska eftir að stunda nám í öðru sveitarfélagi en lögheimilissveitarfélagi, í samræmi við þær reglur um kröfur, ástundun og framvindu í námi sem nánar er kveðið á í 3. kafla.

 

2.      Greitt er samkvæmt gjaldskrá sem sveitarstjórn Súðavíkurrhrepps setur í samvinnu við Tónlistardeild Súðavíkurskóla og fræðslu- og tómstundanefnd.

 

3.   Sérhver nemandi skal sækja um námsvist í öðru sveitarfélagi til skrifstofu Súðavíkurhrepps vegna greiðslu kennslukostnaðar.

 

4.      Liggja skal fyrir samþykki þess sveitarfélags eða þess tónlistarskóla sem um ræðir þar sem til stendur að stunda tónlistarnám. Árlega skal staðfest samþykki liggja fyrir.

 

5.      Súðavíkurhreppur setur reglur um framvindu tónlistarnáms í öðrum tónlistarskólum en tónlistardeild Súðavíkurskóla, hámarkstíma sem námið getur tekið og hámarksnám sem er styrkt , sbr. 3. kafla hér fyrir neðan.

 

6.    Súðavíkurhreppur getur hverju sinni takmarkað fjölda nemenda sem greitt er með til annarra tónlistarskóla til samræmis við svigrúm í fjárhagsáætlun hverju sinni.

 

7.      Ef nemandi í tónlistarskóla flytur lögheimili sitt í annað sveitarfélag á skólaárinu þá greiðir Súðavíkurhreppur vegna hans fram að byrjun næstu annar frá dagsetningu lögheimilisskipta.

 

8.      Súðavíkurhreppur greiðir ekki með nemendum sem stunda tónlistarnám á háskólastigi.

 

 

3. kafli

Reglur um kröfur, ástundun og framvindu

a)      Sækja þarf um heimild á skrifstofu Súðavíkurhrepps fyrir 15. maí ár hvert.


b)      Í umsókn nemandans þarf að koma fram rökstuðningur fyrir því að viðkomandi óskar eftir  að stunda nám annars staðar en við tónlistardeild Súðavíkurskóla.

 

c)      Námsástundun umsækjanda þarf að vera a.m.k. 80% að meðaltali s.l. 3 skólaár við tónlistardeild Súðavíkurskóla.


d)     Meðaleinkunnir s.l. 3ja skólaára þurfa að hafa verið a.m.k. 8,0 í aðalgrein (hljóðfæri/einsöngur) og 7,0 í tónfræðagreinum.


e)      Leggja skal fram afrit af námsvottorði síðasta skólaárs, ásamt umsögn kennara í viðkomandi aðalnámsgrein. Umsögn kennara er höfð til hliðsjónar við mat á styrkhæfi nemandans.

f) Umsækjandi þarf að hafa staðist inntökuskilyrði í viðkomandi tónlistarskóla og geta framvísað staðfestingu þess efnis frá skólanum.

g)      Hverjum og einum nemanda eru settar eftirfarandi framvindukröfur:

 

·         Tilgreint er hve margar annir eru greiddar vegna náms í sérhæfðu námi. Aldrei er þó heimilt að greiða fyrir fleiri en 7 annir í framhaldsnámi. Undanþága frá þessu krefst sértakrar umfjöllunar fræðslu- og tómstundanefndar, svo leita megi fjárheimilda til undanþágu ef rök mæla með henni.

 

·     Sé veitt heimild til að stunda nám í tónlistarskóla í öðru sveitarfélagi á grundveli hagkvæmni fyrir tónlistardeild Súðavíkurskóla, skal eftir sem áður setja framvindukröfur með það að leiðarljósi að framvinda í námi sé sambærileg og almennur hluti aðalnámsskrár tónlistarskóla segir til um.

·      Umsækjandi skal upplýstur um fjölda námsára sem sveitarfélagið skuldindur sig til að styrkja tónlistarnámið. Hér er gert ráð fyrir að grunnnám, miðnám og framhaldsnám taki 10 ár. Undanþága frá þessu krefst sérstakrar umfjöllunar fræðslu og tómstundanefndar svo leita megi fjárheimilda til undanþágu ef rök mæla með henni.

·        Í kröfum um framvindu skal einnig getið um kröfur um námsástundun og námsárangur frá ári til árs. Fræðslu og tómstundanefnd fylgist með þeirri framvindu og óskar eftir vottorði frá viðkomandi tónlistarskóla vegna þessa.


h)      Þeir nemendur sem höfðu heimild á síðasta skólaári til að vera í tónlistarnámi í öðru sveitarfélögum og hafa óskað eftir áframhaldandi heimild til tónlistarnáms fyrir næsta skólaár á eftir geta fengið sína heimild samþykkta til eins árs óháð skilirðum samkvæmt þessum kafla. Nýjar umsóknir um heimild til tónlistarnáms utan Súðavíkurhrepps falla strax undir reglur þessar.

 

4. kafli

Endurskoðun ofl.

Reglur þessar skulu endurskoðaðar vorið 2009

Samþykkt á 27. fundi sveitarstjórnar þann 10.04.08

Fundargerdir

Meira
Vefumsjón