Skipulags, byggingar, umhverfis og samgöngunefnd
Kjörtímabilið 2018 -2022
Aðalmenn:
Samúel Kristjánsson
Valgeir Scott
Hulda Gunnarsdóttir
Anna Lind Ragnarsdóttir
Þorbergur Kjartansson
Varamenn:
1. Birgir Ragnarsson
2. Yordan Yordanov
Hlutverk nefndarinnar er:
Gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í skipulagsmálum og hafa eftirlit með að stefna sveitarstjórnar sé haldin.
Forræði í skipulags-,byggingar-,umferðar- og hafnarmálum í bæjarfélaginu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir þar að lútandi hverju sinni.
Leggja mat á þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélagsins í skipulags-,byggingar-,umferðar- og hafnarmálum með tölulegum upplýsingum og könnunum á meðal bæjarbúa.
Einnig skal nefndin fjalla um þær ábendingar sem berast vegna þjónustunnar.
Að vera sveitarstjórn til ráðuneytis í skipulagsmálum.
Að vinna að öðrum þeim verkefnum sem sveitarstjórn felur nefndinni á hverjum tíma.
Að vera sveitarstjórn til ráðgjafar um hafnarmál.
Að gera tillögur til sveitarstjórnar um markmið í hafnarmálum sveitarfélagsins.
Að gera tillögur um úrbætur í þeirri starfsemi sem undir nefndina heyrir.
Að stuðla að fegrun sveitarfélagsins og snyrtilegri umgengni og leggja sérstaka áherslu á samstarf við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga í því sambandi.
Að annast skiuplag árlegs hreinsunardags umhverfis og að veita viðurkenningu ár hvert aðilum sem dkarað hafa fram úr hvað varðar snyrtimennsku, falleg mannvirki eða á öðru sviði umhverfisverndar.
Að hafa frumkvæði að eflingu endurvinnslu og sorpflokkunar og stuðla að fræðslu og kynningu á þeim málaflokkum fyrir íbúum sveitarfélagsins.