Álagning tekjustofna fyrir árið 2012
- Útsvar
Álagning ársins 14.48% - Fasteignaskattur
B - flokkur, bókasöfn, skólar, íþróttahús, heimvistir o.fl. 1,32%
C- flokkur, iðnaðar, skrifstofu og verslunarhúsnæði 1.65%.
- Lóðarleiga.
Álagning af fasteignarmati lóðar í A flokki, 1,50% - Álagning af fasteignarmati lóðar í B flokki, 1,60%
- Vatnsgjald.
Álagning af fasteignamati húss og lóðar, 0,30%.
Aukavatnsgjald, kr. 8,50 pr. m3.
- Holræsagjald.
Álagning af fasteignamati húss og lóðar, 0,22% - Hámarksgjald á hverja fasteign, kr. 25.358
- Rótþróargjald
- Rotþró < 4.000 kr. 15.500
- Rotþró: 4001 - 6.000 kr. 18.000
- Rotþró: 6001 - 8.000 kr. 20.000
- Rotþró: 8001 - 10.000 kr. 25.000
- Rotþró: > 10.000. verð pr. umfram rúmmetra kr. 2.500
- Gjaldskrá Súðavíkurhrepps vegna sorphirðu fyrir árið 2012.
1. gr.
Súðavíkurhreppur skal innheimta gjald vegna sorphirðu og sorpförgunar samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
2. gr.
Gjaldið er innheimt árlega sem hér segir:
- A) Sorphirðu og eyðingargjald, íbúðarhúsnæði, lögbýli, sumarhús
a) Íbúðarhúsnæði Súðavík, kr. 28.376
- Þar af sorpeyðingargjald kr. 15.764
b) Lögbýli í dreifbýli kr. 15.764
c) Sumarhús í ytri Súðavík kr. 14.188
d) Önnur sumarhús í dreifbýli kr. 18.631
B) Fyrirtæki, stofnanir, félög, og aðrir lögaðilar
- Flokkur 1 kr. 25.000
Flokkur 2 kr. 75.000
Flokkur 3 kr. 150.000
C) Gjaldskrá fyrir sorpmóttöku, Njarðarbraut
Móttökugjald fyrir hvern 0,25 m3 kr. 500
- Hundaleyfisgjald fyrir einn hund kr. 6.000. (Árleg hreinsun innif. )
- Gjaldið verður ekki innheimt vegna hunda á lögbýlum.
Handsömunargjald, fyrsta skipti kr. 5.000
Handsömunargjald, annað skipti kr. 12.000
Handsömunargjald, þriðja skipti kr. 18.000
Handsömunargjald, hundur án leyfis kr. 12.000
- Kattaleyfisgjald.
Kattaleyfisgjald kr. 4.000 kr. ( árl. hreinsun innif.) - Heilbrigðisgjöld.
Innheimt verði gjald skv. gjaldskrá fyrir heilbrigðis og mengunareftirlit Vestfjarðasvæðis. - Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Súðavíkurhreppi er veittur afsláttur af fasteignaskatti, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Súðavíkurhreppi sem búa í eigin íbúð og:
a) eru 67 ára á árinu eða eldri, eða
b) hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar.
Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.
Lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega er tekjutengd miðað við árstekjur 2010 og álagningu skattstjóra ársins 2011, skv. eftirfarandi tekjumörkum.
- a) Einstaklingar:
Einstaklingar fá 50% lækkun sem eru með tekjur allt að kr. 3.234.375.
- b) Hjón:
Hjón fá 100% lækkun sem eru með tekjur allt að kr. 3.363.750.
Hjón fá 50% lækkun sem eru með tekjur allt að kr. 4.398.750.
Við álagninu fasteignagjalda verður reynt að leggja á gjaldendur í þessum hóp miðað við ofangreindar forsendur. Æskilegt er að viðkomandi gjaldendur geri athugasemdir fyrir 10. mars nk. hafi þeir ekki notið þessarar lækkunar en telji sig eiga rétt á henni. - Innheimta fasteignargjalda.
Gjalddagar verði sex, þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst 2012. - Eindagi er fyrsti dagur næsta mánaðar og reiknast dráttavextir frá gjalddaga. Veittur verði 5,0 % afsláttur ef öll fasteignargjöld eru greidd fyrir 5. mars.
Fasteignargjöld undir 20.000.- kr. verða innheimt í einu lagi og gjalddagi 1. mars 2012. Fasteignagjaldainnheimta sem er undir kr. 500.- í heildina á gjaldanda, hjón eða sambýlinga verða felld niður.
Þannig samþykkt á 25. fundi sveitarstjórnar þann 23. nóvember 2011.



