Álagning tekjustofna fyrir árið 2010
- Útsvar
Álagning ársins 13.28%
- Fasteignaskattur
B - flokkur, bókasöfn, skólar, íþróttahús, heimvistir o.fl. 1,32%
C- flokkur, iðnaðar, skrifstofu og verslunarhúsnæði 1.65%.
- Lóðarleiga.
Álagning af fasteignarmati lóðar í A- og B flokki, 1,25%
- Vatnsgjald.
Álagning af fasteignamati húss og lóðar, 0,30%.
Aukavatnsgjald, 8,50 kr. pr. m3.
- Holræsagjald.
Álagning af fasteignamati húss og lóðar, 0,22%
- Rótþróargjald
Rotþróagjald kr. 12.500,-
- Gjaldskrá Súðavíkurhrepps vegna sorphirðu fyrir árið 2010.
1. gr.
Súðavíkurhreppur skal innheimta gjald vegna sorphirðu og sorpförgunar samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
2. gr.
Gjaldið er innheimt árlega sem hér segir:
- A) Sorphirðu og eyðingargjald, íbúðarhúsnæði, lögbýli, sumarhús
a) Íbúðarhúsnæði og lögbýli í Álftafirði, kr. 24.336
- Þar af sorpeyðingargjald kr. 13.520
b) Sumarhús í Álftafirði og lögbýli í Djúpi kr. 13.520
c) Sumarhús innan Kambsnes kr. 7.666
B) Fyrirtæki, stofnanir, félög, og aðrir lögaðilar
- Flokkur 0 kr. 0
- Flokkur 1 kr. 12.000
- Flokkur 2 kr. 20.400
- Flokkur 3 kr. 34.680
- Flokkur 4 kr. 34.680
- Flokkur 5 kr. 58.956
- Flokkur 6 kr. 100.225
- B. 6. Annar úrgangur
b) Brennanlegt sorp kr. 25 per. kg.
c) Óbrennanlegt sorp kr. 15 per. kg.
- Hundaleyfisgjald.
Hundaleyfisgjald verði 6.000 kr. fyrir hund. Gjaldið verður ekki innheimt vegna hunda á lögbýlum.
Handsömunargjald, fyrsta skipti kr. 5.000
Handsömunargjald, annað skipti kr. 12.000
Handsömunargjald, þriðja skipti kr. 18.000
Handsömunargjald, hundur án leyfis kr. 12.000
- Kattaleyfisgjald.
Kattaleyfisgjald kr. 4.000 kr. Árl. hreinsun innif.
- Heilbrigðisgjöld.
Innheimt verði gjald skv. gjaldskrá fyrir heilbrigðis og mengunareftirlit Vestfjarðasvæðis.
- Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega.
Samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, er heimilt að fella niður fasteignaskatt ellilífeyrisþega af eigin íbúð, sem þeir búa íi, á eftirfarandi hátt.
Lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega er tekjutengd miðað við brúttótekjur ársins 2008 og álagningu skattstjóra ársins 2009 skv. eftirfarandi tekjumörkum.
- a) Einstaklingar:
Einstaklingar fá 50% lækkun sem eru með tekjur allt að 3.125.000.
- b) Hjón:
Hjón fá 100% lækkun sem eru með tekjur allt að 3.250.000.
Hjón fá 50% lækkun sem eru með tekjur allt að 4.250.000.
Við álagninu fasteignagjalda verður reynt að leggja á gjaldendur í þessum hóp miðað við ofangreindar forsendur. Æskilegt er að viðkomandi gjaldendur geri athugasemdir fyrir 10. mars nk. hafi þeir ekki notið þessarar lækkunar en telji sig eiga rétt á henni.
- Innheimta fasteignargjalda.
Fasteignagjöld verða innheimt í innheimtuþjónustu Sparisjóðs Vestfirðinga, Súðavík. Gjalddagar verði sex, þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst 2010. - Eindagi er síðasti dagur hvers mánaðar og reiknast dráttavextir frá gjalddaga. Veittur verði 5,0 % afsláttur ef öll fasteignargjöld eru greidd fyrir 5. mars.
Fasteignargjöld undir 15.000.- kr. verða innheimt í einu lagi og gjalddagi 1. mars. Fasteignagjaldainnheimta sem er undir kr. 500.- í heildina á gjaldanda, hjón eða sambýlinga verða felld niður.
Þannig samþykkt á 49. fundi sveitarstjórnar þann 22. október 2009 og endurskoðað og samþykkt á 53. fundi þann 11. febrúar 2010.


